Erfitt að koma sér af stað

Brynleifur á brettamóti í Hlíðarfjalli

Sunnudagur, kl. 10:00. Ég sit í sófanum, nýbúinn með 2 brauðsneiðar og risabolla af kaffi. Er að reyna að koma mér af stað í síðustu æfingu vikunnar sem er 3 klst. endurance. Ég lá í rúminu til klukkan níu í morgun en eins og síðustu vikur var ég vaknaður fyrr og kominn með hausinn á kaf í verkefni í vinnunni. Það verkefni er búið að reynast mér erfitt og næsta vika verður undirlögð af því líka.


Hluti af æfingunni í gær sem var sennilega erfiðasta einstaka æfing sem ég hef tekið.

Í gær tók ég æfingu sem kallast sprint-over/under. Þar fór ég í 30 sek spretti og tók svo 3 mínútur rétt undir threhsold, endurtekið 2x5. Tilgangurinn er að hlaða upp mjólkursýru (laktat) í sprettunum og reyna svo að fá líkamann til að ná að vinna úr henni undir álagi. Þetta var alveg suddaleg æfing og þó krafturinn hafi verið farinn að dvína í sprettunum, þá var ég bara nokkuð ánægður með þetta.

Eftir æfinguna í gær fór ég svo upp í fjall og fylgdist með Brynleifi á brettamóti. Hann er búinn að vera að æfa snjóbretti síðan um áramótin og er kolfallinn fyrir þessu. Hann var s.s. alltaf nokkuð sáttur í körfunni en ég held að honum finnist þetta ennþá skemmtilegra. 

Annars er ég með strengi í löppunum bara eftir að labba einu sinni upp í efri skála í fjallinu. Sýnir manni hvað maður er búinn að vera í einhæfri hreyfingu. Ágætis áminning um að maður hefði gott af því að vera meira í ræktinni og ganga.

En jæja, hjólið bíður.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap