Vikuuppgjör - 1. - 7. jan

Síðustu fjórar vikur á Strava.

Í gær eyddi ég ábyggilega 3 tímum í að stúdera gögn á Training Peaks um hjartslátt við æfingar og skrifa um það lærðan pistil hér á bloggið. Þegar ég loks birti svo pistilinn komst ég að því að ég hafði gert mistök við að reikna þetta út og þetta var því í rauninni ekkert merkilegt.... nú jæja.

Æfingar síðustu vikna- fínn stöðuleiki í þessu.

Annars var þessi VO2max vika bara helvíti fín og ég kom sterkur til baka eftir að hafa verið að drulla á mig í einni æfingu. Ég tók 8,5 klst af æfingum og klukkutíma göngutúr. Ég hjólaði rúmlega 300 km og finnst ég alltaf vera að bæta mig. Það eina sem ég þarf aðeins að passa er að ég hef ekki ennþá náð af mér jólakílóinu sem ég bætti á mig... og fyrir þetta jólakíló var ég með annað kíló sem ég var að reyna að losna við. Þetta stanslausa át mitt núna hjálpar mér mjög við að klára allar þessar æfingar en það er svolítið öfugsnúið að vera að þyngjast þegar maður hreyfir sig svona mikið.

Næsta vika er barnlaus vika hjá mér og ég er búinn að láta Ingvar vita að ég hafi rúmam tíma þegar Harpa er að vinna á miðvikudag og fimmtudag. Ef ég þekki hann rétt setur hann inn 6 klst. á þessa daga og fyllir upp í hina dagana með einvherju djúsí. Við erum alltaf að reyna að finna meiri tíma í dagatalinu hjá mér og þetta er eitthvað. 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap