Stóra myndin.
Þröskuldsæfing dagsins- 36 mínútur á threshold (3x12 mín með 6 á milli). |
Það var strembin æfing hjá mér í dag og aðdragandinn að henni (vinnudagurinn) ekki alveg til að auka bjartsýni. Ég er að drulla á mig af stressi og staðan í vinnunni ekki góð. Mér leið ekkert allt of vel, hvíldarpúls hár og vöðvabólga farin að láta á sér kræla. Það er eitthvað sem ég hef ekki fundið fyrir í mörg ár. Nóg af væli.
Þegar ég kom heim ákvað ég að drífa mig bara strax í þetta, fékk mér smá Honey Nut, fyllti á alla brúsa, greip banana og setti Haribo í skál.
Fyrsta settið byrjaði s.s. ágætlega og ég náði að halda mig á svipuðum slóðum og ég átti að vera og ég sat allt settið. Í seinni settunum var ég aðeins farinn að strögla meira og eitt merki um það er að ég stóð aðeins upp inn á milli. Mig langar til að ná svona þröskuldssettum á jöfnum sveifluhraða og sitjandi allan tímann. En þrátt fyrir svartsýni fyrir æfinguna þá náði ég allavega að klára þetta og var spenntur að sjá niðurstöðuna.
FTP-ið hjá mér þessa dagana er stillt á 260 sem gerir 4w/kg. Það er bara fínt. Á svona þröskuldsæfingum er maður að vinna á 90-100% af FTP og ég átti því að vera á 255 vöttum. Þegar ég hlóð niður æfingunni var ég frekar ósáttur því ég hafði stefnt að því að vera aðeins yfir viðmiðinu. Settin voru svona hjá mér:
- 259 w
- 257 w
- 254 w
Ég skrifaði einhver komment við æfinguna og var að væla í Ingvari yfir því að ég væri ekki að ná nægilega miklum bætingum miðað við æfingamagn og hvað mér fyndist ég öflugur í endurance og tempo æfingum. En síðan ákvað ég að fara aðeins aftur í dagatalið og fann sambærilega æfingu hjá mér síðan í nóvember. Þar hafði ég verið á:
- 240 w
- 237 w
- 236 w
Niðurstaðan er því sú að ég er búinn að bæta mig um ca. 20 vött í þessum keyrslum síðan í nóvember og ég held því að ég sleppi því bara að væla og gefi mér smá klapp á bakið í staðinn. Þetta sýnir manni hvað maður getur verið óþolinmóður og gleymt að horfa á stóru myndina. Þetta snýst allt um stöðuleika og stóru myndina.
Ummæli