Gleðilegt ár!

Það var áramótastemmari hjá okkur í gær!

Gleðilegt ár kæru vinir og takk fyrir innlitið á árinu. Ég var að fatta það að nú eru bráðum að verða 17 ár síðan ég byrjaði að skrifa inn á þetta blessaða blogg og þessi pistill er víst númer 2244. Ég er búinn að skrifa inn að meðaltali þriðja hvern dag 37% af æfi minni! Á þessum tíma hef ég fengið 83.534 innlit sem gera að meðaltali 13,7 innlit á dag ef eitthvað er að marka stjórnborðið á blogginu.

júní 10, 2012
Hjólaði upp í Hjaltadal í dag og fór í kaffi til Sillu og Gumma. Guðrún kom með strákana og Sigga og Haukur voru mætt á svæðið. Hjólaði svo heim aftur, skipti um skó, tróð í mig einni peru og hnetum og hljóp svo út aftur. Tók 4 km hlaup frekar hratt. Svona æfingar tíðkast fyrir þriþraut og er tilgangurinn að venja mann við að fara beint af hjólinu og í hlaup eða beint úr sundlaug og á hjól (hef ekki prófað það).
Ég hjólaði því 51 km í dag og hljóp 4. Ágætis dagsverk það.

Ég hef stunduð verið að velta því fyrir mér af hverju í ósköpunum ég er að halda þessu úti en fæ aldrei skýr svör. Sennilega er þetta bara tengt einhverri sköpunarþörf. Ég verð líka að viðurkenna að það er gaman að glugga í gömlum færslum og skoða aftur í tímann hvað maður var að bedríva. Kannski verður gaman fyrir börnin mín að kíkja á þetta einhvern tímann? 

mars 29, 2019
Nú er þessi vika að líða undir lok og annar súper bissý dagur að kveldi kominn. Svipuð rútína og í gær nema núna buðum við Patta vini Brynleifs í pizzu og bíókvöld. Keypti reyndar óvart líka  örbylgjupopp þar sem ég var búinn að gleyma að örbylgjuofninn elti fyrrverandi konuna mína niður í Aðalstræti. En í staðinn gróf ég upp frostpinna og svo áttum við jarðhnetur í skurn. Það var gríðarlegt sport að brjóta upp hneturnar, flokka og safna upp í hauga. Stofuborðið var orðið eins og vinnslulína og þau voru eiginlega alveg hætt að horfa á myndina. Nú er til fullt af hnetum sem búið er að taka utan af.

Í gegnum árin hefur bloggið skiljanlega litast mjög af því hvað ég hef haft fyrir stafni og mínum helstu áhugamálum. Málningatímabil, veiði, golf, líkamsrækt og hjólreiðar. Í upphafi var ég reyndar að rembast við það eins og rjúpan við staurinn að vera hnyttinn og fyndin. Læt aðra dæma um hvernig það tókst til. Og þó ég hafi aldrei þorað að galopna mig á veraldarvefnum þá hef ég stundum gefið einhverja innsýn inn í sálarlífið, t.d. á erfiðum stundum.

September 23, 2019
Ég er ennþá að reyna að venjast því að vera svona mikið einn aftur og það gengur upp og ofan. Það er einhver togstreita innra með mér í þessu sambandi. Ég þrái að vissu leiti samskipti og tengingu við annað fólk, en á sama tíma langar mig bara helst að loka mig af. Ég hefði mjög gott af því að komast í einhvern góðan og gefandi félagsskap þar sem er verið að gera eitthvað eða ræða eitthvað sem skiptir máli. Eitthvað nærandi fyrir sálina. En það þýðir væntanlega ekkert að sitja bara og bíða eftir að það gerist og því kannski best að fara að svipast um eftir einhverju áhugaverðu.

desember 21, 2017
Oft hef ég verið á barmi þess að loka blogginu mínu og er ástæðan m.a. sú að maður fær alltaf einhverja útrás og eyðir alltof miklum tíma á fésbókinni. Nú síðustu misserin hefur þetta eiginlega verið að snúast við og mig langar að hætta á FB en halda áfram að blogga. Ég skrifa í rauninni aldrei neitt frá hjartanu inn á FB og fæ enga útrás þar fyrir sköpun. Ég hef reyndar ekki ennþá alveg náð að hugsa það til enda hvernig væri að vera ekki þar inni, m.a. í sambandi við viðburði og halda tengslum við fólk. Auglýsa myndlistina mína og selja verk??

Jæja nú er ég búinn að vera í marga daga að skrifa þennan pilstil og löngu búinn að gleyma því hvert ég stefndi með þessu. En ég átti allavega yndislega jólahátíð með Hörpu og börnunum og nú er lífið aftur orðið saltfiskur.

Æfingar ganga vel og eitt merki um það er að hvíldarpúlsinn hjá mér hefur sennilega aldrei verið lægri. Ingvar er búinn að láta mig taka 2 erfiðar VO2max blokkir í röð og sú þriðja að hefjast. Ég ætla ekki að véfengja aðferðafræðina og treysti því að hann viti hvað hann er að gera. En ég verð að viðurkenna að það væri gott að fá tilbreytingu í næstu viku.

Ég fór nýlega yfir það helsta á árinu og hvernig mér gekk við markmiðin og nenni því ekki að fara mikið í það. Við Ingvar höfum ekki sett nein markmið fyrir árið ennþá og mér liggur s.s. ekkert á að gera það. Ég er alveg nægilega mótíveraður og geri mitt besta.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap