Fimma!

Hluti af nestinu sem ég "tók" með mér á langa laugardagsæfingu. Ég er mikið að vinna með Haribo og Trek próteinstykki. Ef ég þarf að vera mjög lengi tek ég samloku, t.d. með súkkulaði.

Já ég vaknaði klukkan 05:00 í morgun til að taka tveggja tíma æfingu! Klappa sjálfum mér á bakið fyrir að vera svona sturlaður. Til að þetta gengi upp var ég farinn í bælið klukkan níu í gærkvöldi og ég sofnaði nú reyndar frekar fljótt. Hrökk svo upp í hlandspreng klukkan tvö í nótt og þá var ungabarnið á efri hæðinni á orginu. Veit ekki hvað klukkan var þegar ég sofnaði aftur en eflaust náði ég allavega tveimur tímum í viðbót. Ekki mjög góður svefn þessa nóttina.

Þrátt fyrir það fannst mér ég ágætlega útsofinn þegar ég staulaðist á fætur til að fá mér smá orkuskot fyrir æfinguna. Ég mokaði í mig blöndu af Honey Nut og Cheerios og drakk einn espresso. Tók svo með mér 750 ml. af vatni, 500 ml af vatni með söltum, samloku með súkkulaði og Haribo hlaup og settist á hjólið.


Æfing morgunsins. Það er áhugavert að sjá hvernig púlsinn fór niður þegar á leið- sennilega var ég þurr þegar ég byrjaði.


En líkaminn á mér er ekki vanur svona látum um miðja nótt og þegar æfingin var að byrja leið mér eins og ég væri á 300 vöttum en ekki 155. Púlsinn rauk líka upp og ég hugsa að ég hafi bara verið frekar þurr því ég gleymdi að þamba vatn áður en ég byrjaði. Ég kláraði því úr vatnsbrúsanum frekar fljótt og eftir það fór púlsinn að færast niður hægt og rólega. Þegar á leið æfinguna fór mér svo að líða betur og þó þetta hafi verið krefjandi, þá hefði ég s.s. alveg getað haldið áfram. Ég var að komast í gírinn!

Það er tvennt sem ég tek með mér út úr þessu:

  1. Tveir tímar er algert hámark fyrir vinnu á morgnana
  2. Ég held að það sé ekki séns að ég geti tekið interval æfingu svona snemma dags.

En ég er ánægður með að hafa klárað þetta og búinn að græða tvo tíma eftir vinnu í dag. Að lokum, ég er alltaf að sjá það betur og betur hvað margborgar sig að troða vel í sig fyrir erfiðar æfingar og ef maður getur étið á hjólinu er það game changer.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap