Ekki mikið í fréttum

VO2 max æfing dagsins- 6x3mín með 3 mín hvíld á milli.

Ég kom frekar druslulegur heim úr vinnunni í dag eftir mikið stress og var ekkert allt of spenntur að taka æfingu. Ég er ennþá að hamast í þessum VO2 max æfingum og það er komin smá þreyta í mig- aðalega þó andlega. Þessar æfingar taka það mikið á að manni getur kviðið aðeins fyrir þeim, sérstaklega ef maður er farinn að taka 3 á viku. Maður getur þurft að kafa nokkuð djúpt til að klára þær og það væri synd að segja að þetta sé gott.

Annað sem ég hef tekið eftir í þessari VO2 max blokk er að lappirnar á mér eru ekki jafn sprækar í upphitun og mér líður sjaldnar eins og ég sé gjörsamlega að rifna úr orku, geti slitið keðjuna og brotið pedalana. Mér líður ekki eins og ég sé mjög öflugur eða sé að bæta mig. En þetta er alveg eðlilegt og ef ég geng ekki of langt og fæ sæmilega hvíld eftir þetta, þá bæti ég mig eflaust.

Þrátt fyrir mjög erfiða (3x5 mín) æfingu í gær þar sem ég var ekkert of ferskur þá náði ég að negla æfingu dagsins þokkalega. Upphitunin var reyndar mjög þung og mér leist ekkert á blikuna. Fyrsta settið var frekar strembið en ég dröslaðist svo í gegnum hin eitt af öðru. Ég gaf svo allt í lokasettið og negldi það á 10 vöttum meira en ég átti að halda. 

Þrátt fyrir að finna fyrir þreytu síðustu daga þá er ég ennþá að ná að klára æfingarnar og hef ekki ennþá lent í að þurfa að bakka út. Og ég er ekki bara að klára þær heldur er ég aðeins yfir vöttunum sem eru á matseðlinum. Ég held því áfram að þrauka en hlakka alveg voðalega til að klára þetta VO2 max dót.

Brynleifur bað mig að kenna sér að vatnslita á sunnudaginn og ég gat ekki skorast undan.

Annars er bara allt þokkalegt að frétta. Harpa er búin að vera að vinna síðustu 2 daga og ég hef því haldið mig heima og dundað mér við að mála. Ég fékk beiðni um eina mynd og gat eiginlega ekki skorast undan í þetta skiptið. Hver veit nema það kveiki einhvern neista?


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap