Aftenging um helgina
Ég er loksins kominn með viðgerðarstandinn sem ég er búinn að ætla mér að kaupa í mörg mörg ár. Nú er bara að reyna að læra aðeins að bjarga sér sjálfur- já eða finna tímann í það. |
Nenni ekki að væla of mikið hérna inni en þessi vika er búin að vera korter í burnout. Segi það og skrifa. Slæm líðan, stress, hár púls og almenn skita á mörgum sviðum. Næstu 2-3 vikur stefna í svipaðan farveg og það er spurning um að ég geri smá nótu til Ingvars til að búa okkur undir þetta æfingalega séð. Kemur kannski aðeins í ljós í næstu viku hvert þetta þróast. En ég stefni að því að slökkva á tilkynningum í vinnupóstinum um helgina og vona að ég nái aðeins að kúpla mig út. Ég þarf á því að halda.
Í gær tók ég 1,5 klst endurance æfingu á hún tók meira í heldur en ég hefði búist við. Kannski var það bara vegna þess að þetta var fyrsta alvöru æfing vikunnar og svo getur verið að stressið sé farið að bíta á mér. Ég á rólegan klukkutíma í dag (sem er gott) og svo er 3x10mín tempo á morgun. Tempo er æfing sem mér finnst geggjuð en er pínu stressaður um að hún muni taka óþarflega mikið í. Kemur í ljós.
Ummæli