Að hlusta á líkamann
Ég hef lengi vel talið mig nokkuð lunkinn við að hlusta á líkamann og hef haft á tilfinningunni að ég sé fær um að meta hvenær er skynsamlegt að skipta út erfiðri æfingu fyrir auðvelda, eða taka bara alveg frí. Þegar ég var að þjálfa mig sjálfur notaði ég þetta stundum. Stundum byrjaði ég kannski á æfingu en bakkaði svo út. Í einhverjum tilfellum hætti ég bara við æfingu og tók kannski klukkutíma rólegt í staðinn eða hvíldi.
Eftir að ég byrjaði að þjálfa hjá Ingvari hefur þetta breyst og ég hef verið miklu harðari við mig. Ég upplifi smá pressu á að sanna mig. Það hefur reyndar ekki oft komið fyrir að mér líði eins og ég sé orðinn of þreyttur til að taka æfingu, en þó það hafi gerst hef ég alltaf látið vaða. Á þessum rúmu þremur mánuðum sem ég hef verið hjá Ingvari hef ég aldrei þurft að sleppa æfingu og ég hef eiginlega klárað þær allar með stæl. Við erum að tala um 5-6 æfingar í viku að jafnaði.
Í fyrradag átti ég mjög erfiða VO2max æfingu og ég var nokkuð viss um að ég væri kominn gjörsamlega fram á brúnina. Ég strögglaði í gegnum öll settin (4x4mín) og var endalaust að skipta um gír og standa og sitja á víxl. Þar að auki var ég að kafna úr mæði. Ég hafði strax á tilfinningunni að það væri ekkert nokkurt vit í að taka aðra VO2max æfingu strax daginn eftir (10x2mín).
Til að bæta gráu ofaná svart flaug ég svo á hausinn á leið í vinnuna í gærmorgun á hjólinu og lemstraðist á vinstri mjöðminni, fékk högg á vondu öxlina og hné og fékk tak í hálsinn. Þetta bættist ofaná pirring í maga og almennan slappleika.
Ég var alvarlega að spá í að fá ráðleggingar hjá Ingvari um hvort ég ætti að skipta út æfingunni en eftir að heim var komið- og eftir að hafa troðið í mig morgunkorni og banana, þá ákvað ég að byrja allavega æfinguna og sjá til hvernig færi.
Ég var mjög þungur í upphituninni og hún tók vel í en síðan fór ég aðeins að koma til. Fyrsta settið var reyndar nokkuð erfitt en þar sem ég vorkenndi mér svo mikið ákvað ég að setja yfir á ERG mode til að auðvelda mér lífið. ERG mode er stilling á trainernum þar sem vöttin haldast jöfn sama hvað og maður þarf einungis að hugsa um að halda uppi sæmilegum sveifluhraða á pedulunum (cadence). Ekkert að hugsa um að skipta um gíra.
Til að gera langa sögu stutta fór þetta bara að ganga helvíti vel og í lokin fór ég að auka við ákefðina til að gera þetta erfiðara. Fyrstu settin voru tekin á 285 vöttum en í því síðasta var ég kominn upp í 300 vött. Ég kláraði því æfinguna með stæl og var nokkuð yfir TSS skorinu sem ég átti að ná.
Hvíldarpúlsinn hjá mér frá morgni til kvölds síðasta mánuðinn. |
Ég er að komast að því hægt og rólega að sennilega var ég sjálfur aldrei að ýta mér nægilega langt fram á brúnina og ég þoli miklu meira æfingaálag en ég reiknaði með. En ég er líka með fagmann í að setja upp æfingarnar og ég treysti því að hann passi upp á rétt jafnvægi milli mismunandi æfinga og gefi mér frí þegar við á. Ég get reyndar nefnt að þegar Ingvar lætur mig "hvíla" þá þarf ég oftast að hjóla rólega í klukkutíma. Ég held að það sé að svínvirka.
Þó þetta gangi skínandi vel ennþá er ég mjög meðvitaður um að halda áfram að reyna að hlusta á líkamann og finna merki ef ég fer að ganga of nærri mér. Í þessu sambandi væri líka gott fyrir mig að fá mér almennilegt Garmin úr sem fylgist með svefni, hefur nákvæmari mælingu á hjartsláttartíðni (heart rate variability) og gefur manni mælikvarða á álag og stress (body battery). En mikilvægast er að meta stöðuna á hverjum morgni, spá í hvernig lappirnar eru, spá í hvernig manni líður andlega, hvort maður sé þreyttur osfv. Það toppar það ekkert þegar allt kemur til alls.
Í dag er ég með gamalt iWatch og eina mælingin úr því sem er þokkalega nákvæm er hvíldarpúls yfir daginn (úrið er í hleðslu á næturnar). Í því sambandi er reyndar gaman að nefna að þrátt fyrir mikið álag upp á síðkastið þá er hvíldarpúlsinn að fara niður hjá mér. Það bendir til þess að ég sé að komast í betra form.
Að lokum, smá vangaveltur í sambandi við hvernig ég fór úr því að vera að drepast á einni æfingu yfir í að vera bara þokkalega sprækur daginn eftir? Hvað gerði ég eftir fyrri æfinguna sem hefur hugsanlega hjálpað mér að jafna mig svona vel (utan við að krassa á hjólinu)? Eftir æfinguna fékk ég mér Hleðslu og fór í heitt bað. Síðan fór ég yfir til Hörpu og borðaði fullt af fiski, kartöflum og soðnu grænmeti. Kann varla við að segja frá því en ég át líka nammi og laufabrauð með smjöri. Síðan lagðist ég í sófann og hreyfði mig ekki þar til við fórum inn í rúm. Síðan fékk ég hátt í 8 klst. svefn. Þetta hefur væntanlega haft sitt að segja.
Ummæli