Test vika

Síðustu vikur á Strava- grunnþjálfun gengur vel. Ég er kominn rúmlega 11 þúsund kílómetra á götuhjólinu í ár en var búinn að stefna á að fara úr 8 þúsund í 10 þúsund árið 2023. Ég á því eftir að fara hátt í 12 þúsund ef allt gengur að óskum.

Síðasta vika á hjólinu gekk vel þrátt fyrir smá niðursveiflu og þreytu um miðja vikuna. Eftir erfiða þröskuldsæfingu á fimmtudaginn þar sem ég var í miklu ströggli, þá kom ég sterkur til baka á föstudeginum og negldi hina þröskuldsæfinguna. Það var vísvitandi gert hjá Ingvari að sjá hvernig ég myndi bregðast við tveimur svona erfiðum í röð og við vorum ánægðir með útkomuna.

Þó að síðasta vika hafi ekki verið jafn stór og vikan þar á undan, þá æfði ég í heildina í 11:44 klst, loggaði 375 km og var með álag upp á 546 TSS (Training Stress Score). Mér líður vel að öðru leiti en því að ég er með strengi eftir að hafa farið í ræktina á laugardaginn.

Núna er Ingvar búinn að henda á mig 5 mínútna VO2 max testi á miðvikudaginn og svo er 20 mínútna FTP-test á laugardaginn. Annars bara rólegt hjól til að jafna sig og hvíla. Ég verð að viðurkenna að ég var að vonast til að við færum ekki í þetta strax en ég held að hann hafi grun um að ég hafi bætt mig á þessum 2 mánuðum. Ég er ekki mótíveraður í þetta en treysti Ingvari og ætla ekkert að biðja hann að breyta neinu. Verð samt að viðurkenna að ég upplifi pressu á að bæta mig.

Annars er lífið gott og helgin var frábær hjá okkur börnunum. Við fórum í jólaföndur í Lundarskóla á laugardaginn, skreyttum húsið í gær og gerðum eitt og annað skemmtilegt. Brynleifur er búinn að vera mjög duglegur að fara á Braggaparkið og var úti að leika sér á sleða með Kára í gær. Maður er svo óskaplega feginn þegar hann finnur sér eitthvað annað að gera en að vera í tölvu og síma. Þá verður hann allt annar maður og miklu kátari. Dagbjört náttúrulega er alltaf á útofnu og í engum vandræðum með að finna sér eitthvað að brasa, sama hvort það er að leika með vinkonum (sem eru mjög margar) eða dunda sér við að föndra, laga til eða gera fimleikaæfingar í stofunni. 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap