Sama gamla góða FTP-ið
FTP-test 16.12.2023. |
Ég ákvað að reyna að vera skynsamur og halda bara 240-260 vöttum fyrstu 10 mínúturnar en gefa þá í. Síðan var ég líka staðráðinn í að reyna að standa síðustu 2 mínúturnar. Eftir 10 mín skipti ég niður um gír og poppaði vöttunum upp í 260-280 en leið eins og myndi ekki ná að halda það út í 10 mínútur og bakkaði út í smá stund. Þegar 5 mínútur voru eftir skipti ég aftur niður, jók vöttin og kláraði svo standandi (1,5 mín).
Niðurstaðan var 261 vatt fyrir þessar 20 mínútur sem gerir FTP upp á ca. 250 (3,8 w/kg) sem er nákvæmlega það sama og ég fékk síðast. Þegar ég horfi á grafið hér fyrir ofan og sé þennan dal sem er þarna í síðari 10 mínútunum er ég svekktur að hafa ekki verið aðeins harðari við sjálfan mig. Ég get betur.
En, þetta er allavega búið í bili og við hækkum ekki FTP-ið hjá mér að sinni. Ég reyni bara að vera jákvæður og veit þá allavega að mér er ekki að fara aftur þrátt fyrir mikið æfingamagn upp á síðskastið.
Ummæli