Jólin

Síðustu vikur á Strava.

Jæja þá eru jólin víst komin og maður er loksins kominn í smá slökun. Ég og Helga systir komum í Brekku í gærkvöldi og ég verð hér fram á Jóladagskvöld. Harpa er að vinna alla daga fram á Jóladag og því fannst mér notarlegra að vera með mínu fólki. Við höldum svo okkar jól og áramót með börnunum þegar ég kem í bæinn.

Þó þetta séu í raun bara 2 dagar sem ég verð að heiman hefði verið gott að geta tekið smá endurance æfingar til að vega upp á móti öllu átinu en ég reikna samt með að líkaminn hafi gott af því að hvíla sig aðeins. Næstu 2 æfingar eru frjálst jólahjól (endurance) 26. og 27. og ég tek bara eins langt og ég treysti mér til. Ég reikna svo með að Ingvar hendi inn æfingum fram að áramótum fljótlega.

Ég sendi Ingvari tölvupóst í fyrradag og spurði hann aðeins út í planið eftir áramót og hann er ekki alveg búinn að hugsa það. Honum finnst samt ekki ólíklegt að við vinnum eitthvað meira með VO2max fyrst um sinn. Kemur í ljós.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap