Fínn stöðuleiki síðustu vikur.

Síðustu 4 vikur á Strava.

Þá er þessari test-viku lokið og þó ég hafi ekki staðið mig jafn vel og ég hefði vonast til, þá ætla ég ekkert að vera að berja á sjálfum mér fyrir það. Æfingatímabilið er rétt að byrja og við höfum aðalega verið að taka þröskuldsæfingar (threshold) sem eru gerðar til þess að maður sé tilbúinn undir erfiðari æfingar sem lyfta svo upp FTP-inu (t.d. VO2max æfingar). Við erum að byggja stóran grunn og ekki komnir í bætingar ennþá.

Ingvar er búinn að fara yfir testin og var sammála mér að 5 mínútna VO2max prófið hafi verið klúður og var líka sammála mér að  ég hafi sennilega getað lagt mig aðeins meira fram í 20 mínútna FTP testinu. Hann var samt ánægður hvernig ég framkvæmdi það próf.

Nú er jólavikan komin inn á Training Peaks og Ingvar er búinn að henda inn 5 æfingum- þar af þremur VO2max æfingum. Ég á eftir að spyrja hann hvort hann sé að spá í að hífa upp hjá mér FTP-ið eða hvort hann sé bara að setja inn mikið álag fyrir lítinn tíma. Vikan verður bara 7 klst. sem er ekki mikið miðað við hvað ég hef verið að gera en gott í aðdraganda jóla.

En í heildina er ennþá fínn gangur í þessu hjá mér og ég er mjög ánægður með stöðuleikann. Ég þoli álagið vel og á orðið auðvelt með að halda hærri vöttum á löngum endurance æfingum. Það helsta sem ég má bæta núna er að fara aðeins að huga aftur að mataræðinu aftur. Þyngdin stendur nokkurnveginn í stað en ég mætti bæta inn meiri hollustu og skera út smá fitu og óþarfa nammiát.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap