Æfingadagbók
Eftir vinnu í dag tek ég VO2max æfingu númer tvö af þrjú í þessari viku (5x3mín) og svo kemur aftur rólegur klukkari á morgun. Á laugardaginn (Þorláksmessu) er komið að síðustu erfiðu æfingu vikunnar sem er 30/15 VO2 max (2x10 mín). Það þýðir að maður er í hálfa mínútu á VO2 max og fær svo hvíld í 15 sekúndur. Þannig gengur það í 10 mínútur, svo kemur smá hvíld og svo byrjar maður aftur. Þetta er því nokkurskonar tabata æfing þar sem stutt hvíld leyfir manni ekki að jafna sig að fullu. Drullu erfitt. Vikan mun því enda á laugardegi, samtals 8 klst. með ræktinni.
Annars er bara mest allt að smella fyrir jólin og flestir ef ekki allir pakkar komnir í hús. En eins og venjulega er þetta alltaf stress. Börnin eru komin í frí og hafa þurft að vera sjálfala þar sem ég er að vinna alla daga. En þau eru dugleg að redda sér og finna sér eitthvað að gera.
Ummæli