Tjing tjing!!

Þetta eru s.s. engar risavikur hjá mér en þetta tikkar inn.

Ég klárað síðustu viku með stæl og hún gekk í heildina mjög vel. Ég var 8 klst. á hjólinu og fór 2 tíma í ræktina. Eftir smá þreytu eftir lyftingar náði ég að snúa við blaðinu og var mjög öflugur á laugardaginn. Mér líður vel og finnst ég vera að bæta mig þrátt fyrir að kvefið sé þrálátt og maginn ekki alveg eins og hann á að vera.

Training Peaks heldur vel utan um ýmis gögn.

Mataræðið hjá mér hefur verið nokkuð stabílt upp á síðkastið og það er allavega á hreinu að ég er að éta nóg. Ég passa mig sérstaklega að næra mig vel í kringum æfingar og éta nóg á hjólinu. Kjúklingur, fiskur, grænmeti, hrísgrjón og kartöflur eru meginuppistaðan í fæðinu hjá mér og á hjólinu ét ég hafrastykki, Haribo hlaup og banana.


Vikan á Training Peaks.

Ingvar setti upp nýja viku fyrir mig á sunnudaginn og þó hún sé aðeins styttri en sú síðasta þar sem ég er með börnin þá er hún örlítið erfiðari. Ég tek 2 tíma endurance í dag og svo er helvíti erfið threshold æfing á morgun (3x12 mín) og over/under á föstudaginn. Ég stefni svo að því að bæta við aukaæfingu á laugardaginn þar sem ég verð í fríi í allavega 2 daga í næstu viku. 

Ingvar er farinn að forvitnast hvernig við náum að bæta inn tímum hjá mér í hverri viku og á því er engin einföld lausn. Sennilega best fyrir mig að taka klukkutíma hér og þar fyrir vinnu og lengja svo helgaræfingarnar.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Kylfingur spjall

Góðan daginn öll

Negri í Þistilfirði