Test dagur #1
Eins mínútna loftfyrrt (anaerobic) test. |
Í dag er komið að fyrsta testinu sem ég tek hjá Ingvari. Þetta er test til að kanna hvað ég get haldið miklu afli í eina mínútu (loftfyrrt). Þarna brennir maður upp glúkósa og fosfókreatíni á mettíma þangað til vöðvarnir eru orðnir gallsúrir og maður getur ekki meir. Ein mínúta hljómar ekki sem langur tími en maður þarf gjörsamlega að slátra sér í þessu og þetta er ekki neitt skemmtiefni. Ingvar vill helst að það líði yfir mann eða allt að því.
Mesta power sem ég hef haldið í eina mínútu (sem ég finn gögn um) er 546w sem var ca. 8,4 w/kg á þeim tíma. Það telst gott, en ekkert yfirburðar. Metið setti ég sennilega þegar ég og Víðir vorum að reyna að taka kórónu upp stutta brekku við Norðurorku. En þetta var upp brekku og úti þannig ég er með hóflegar væntingar fyrir prófið í dag.
Ég veit eiginlega ekki hvernig ég tækla þetta í dag en stefni að því að fara strax upp í 500+ w og svo bara reyna að hanga. Ég verð sáttur með allt yfir 500 vöttum en næsta sumar þegar ég verð kominn út langar mig yfir 600 vött.
Ég mun pósta einhverju um hvernig gekk seinna í kvöld......
Ummæli