Test #1 - niðurstaða
1 mínútna anaerobic test- bleika línan er vött og gula er pedalsnúningur. Púlsmælir klikkaði og var ómarktækur. |
Jæja þá er maður búinn með þetta test og ég er svona sæmilega sáttur með þetta. Ég rétt slefaði yfir 500 vöttin sem gerir 7,6 w/kg sem er svona miðlungs frammistaða. Eins og sést á myndinni þá byrjaði ég of skarpt- en þá leið mér alveg eins og ég gæti haldið +600 vöttum allan daginn. Sú var ekki raunin og ég fór að dala frekar hratt og var alveg búinn á því í lokin.
Þetta er nokkuð undir því besta sem ég hef gert en eins og kom fram í póstinum á undan þá var það úti og mér finnst það ekki sambærilegt.
Á morgun er 5 mínútna test og ég kvíði því miklu meira en þessu. Í upphitun í dag tók ég 2x3 mínútur á 290w og það tók vel í. Á morgun á ég að reyna að halda mig í kringum 350 vött í 5 mínútur og ég er ekki alveg farinn að sjá hvernig ég á eftir að meika það. En ég mun gera mitt besta.
Ummæli