Strengir frá helvíti
Mynd sem Halldóra tók af okkur feðgum draga í réttunum í gær. |
Réttarhelgin í sveitinni góðu var vel lukkuð og óhætt að segja að maður hafi gert vel við sig í mat. Þriggja kílóa sveifla frá fimmtudegi fram á mánudag er ekkert eðlilegt helvíti. Væntanlega mikill vökvi í þessu en nú er ég aðeins kominn á bremsuna þar sem ég á ennþá eftir eina PB ferð upp í Skíðahótel.
Strengirnir sem voru nettir á laugardaginn ágerðust hrikalega og ég var varla gangfær í gær og í dag. Og ég sem var hættur að fá strengi. Veit ekki hvort þetta er blanda af hlaupinu og ræktinni eða bara hlaupin. Skiptir ekki öllu máli en ég tek frídag í dag og fer svo rólega af stað á morgun aftur.
Ummæli