Nettir strengir

Ljómalind að fá sér bita af Trek stykki- úr síðasta hjólatúr. 

Þegar ég var að hlaupa í gær fann ég alveg að ég myndi sennilega fá strengi og þá sérstaklega í Vastus medialis, svo maður slái um sig með latínu. Þegar ég hef ekki hlaupið lengi þreytist ég mest í vöðvum innan á lærunum og rétt fyrir ofan hnéin. En ég er ekki svo slæmur í dag þó ég finni smá seyðing. Mér líst því bara vel á stöðuna og hlakka til að hlaupa meira næstu 2-3 mánuði.

Í morgun vöknuðum við Harpa og fórum í paratíma í ræktinni og fórum í gegnum klukkutíma fjölbreytt prógram þar sem við skiptumst á að vinna. Þetta tók vel á öllum líkamanum og var hrikalega gaman. Ég tók bara sömu þyngdir og Harpa og var vel meðvitaður um að byrja rólega. Ég stefni að því að kaupa kort í Norður því það er gaman að geta farið saman í ræktina og svo er fínt að fá tilbreytingu frá TFW þar sem ég hef verið með annan fótinn síðustu 2-3 ár.

Við erum að fara austur í sveit á eftir og ætlum að fara í réttir í fyrramálið. Það verður því svona semi hvíldardagur eins langt og það nær. Veðurspáin er fín fyrir mánudag og þriðjudag og ég stefni að því að klára að bæta bestu tímana mína (markmið ársins) svo ég geti lagt það til hliðar.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap