Metnaðurinn í eldhúsinu
Billy's klikkar ekki. Óhollt og gott. |
Ég man ekki hvenær það gerðist, en metnaðurinn hjá mér í eldhúsinu er farinn niður úr öllu valdi. Núna snýst þetta aðalega um að gera eitthvað einfalt, fljótlegt og þokkalega hollt (ekki endilega á föstudögum samt). Við Harpa erum alveg samstíga í þessu og nennum engu brasi eða veseni. Höfum kannski heldur ekki tíma og látum æfingarnar sitja fyrir.
Sú var líka tíðin á föstudögum að maður nennti að búa til pizzu frá grunni en svo fór maður að freistast til þess að fara frekar og sækja. Eftir langa vinnuviku hætti maður að nenna að standa í þessu. Eftir að ég seldi bílinn þá hætti ég að tíma að kaupa tilbúnar pizzur enda tilboðin miklu verri í heimsendingu. Þetta fór svo að þróast yfir í að kaupa frosna Dr. Oetker pizzur og bæta við þær áleggi. Þær eru drullu fínar ef maður eldar þær á miklum hita.
Núna er botninum náð og ég kaupi stundum bara Billy's pizzur á liðið. Þær kosta 267 kr./stk. í Nettó. Síðan bætir maður smá pepperoni ofaná og drekkir þessu í kokteilsósu. Strangheiðarlegt og allir sáttir. Tek það reyndar fram í lokin að við borðum ekki lengur pizzur alla föstudaga eins og áður var.
Hlaup dagsins. |
Annars skellti ég mér út að hlaupa m.a. vegna þess að mig langaði bara ekki neitt til þess að fara út að hjóla. Ég hef fundið fyrir því upp á síðkastið að vera minna spenntur fyrir því að fara á hjólið og því er fínt að fara að svissa yfir í hlaup og rækt til að fá tilbreytingu.
Annars gekk hlaupið drullu vel og ég fann ekki fyrir því að vera búinn að vera í langri hlaupapásu. Púlsinn var bara góður, ég var ekkert of þreyttur og fann ekki til í hnjánum. Super ánægður með þetta. Á meðan ég var á hlupunum samdi ég svo við sjálfan mig að teygja vel þegar ég kæmi heim, enda verið latur við það upp á síðkastið. Næst er ræktin í fyrramálið en svo er frí frá æfingum um helgina. Ég held að ég hafi gott af því.
Annars er ég í viðræðum við Ingvar Ómars Íslandsmeistara í hjólreiðum að þjálfa mig fyrir næsta tímabil. Ég hef gengið með það í maganum lengi að prufa að fá fersk augu á það sem ég er að gera og held að þetta sé rétti tímapunkturinn. Ég veit ekki hvað ég endist lengi í að keppa og því gott að læra af einhverjum reyndum fyrr frekar en síðar. Meira um það síðar.
Ummæli