Hlaup

Ég á ekki margar hlaupamyndir en mér finnst alltaf vænt um þessa sem var tekin um árið þegar ég, mamma og Helga Guðrún skelltum okkur saman út að hlaupa.

Ég ætla ekki að hafa þetta langt að sinni. Vikan hefur litast af Hausthlaupi UFA sem verður í kvöld. Ég hef reynt að stilla af æfingar til að vera vel undirbúinn undir það, þó ég sé ekki að taka þessu of hátíðlega. Ég henti mér út að hlaupa í gær til að reyna að koma löppunum í gang. Ég hljóp 5 kílómetra frekar rólega en henti inn hraðabreytingum til að sjá hvernig lappirnar (og lungun) bregðast við.

Hlaupið gekk í raun vel en ég finn samt að vinstri ristin á mér er aðeins aum og ég gæti alveg trúað því að ég eigi eftir að þoka mér í átt að álagsmeiðslum með hlaupinu í kvöld. Líkaminn er ennþá að venjast þessu hlaupaálagi og ég verð að fara varlega í kjölfarið. 

Ég er búinn að setja mér markmið fyrir kvöldið og mig langar að sjá hvort ég nái ekki að klára þetta á undir 22 mínútum. Ég held að það teljist ásættanlegt miðað við að vera ekki búinn að hlaupa mikið. Ég hugsa að ég reyni að vera á ca. 4:30 pace fyrstu 2,5 km en ef lungun leyfa muni ég reyna að skrúfa mig upp í 4:00 pace restina (negative split).

Ég er ekki búinn að heyra í Ingvari Ómars lengi varðandi þjálfun í vetur en hann er löglega afsakaður á Evrópumótinu í götuhjólreiðum. Ég reikna samt alveg með því að við förum að vinna saman og miðað við hans áherslur reikna ég með að leggja hlaupaskónna á hilluna fljótlega aftur. Ef ég ætla að halda mér góðum á hjólinu og vera duglegur í ræktinni, þá get ég eiginlega ekki haldið hlaupunum inni. Ég mun þó nota þau í neyð þegar ég er í vinnuferðum. Mig langar reyndar að taka þátt í Vetarhlaupum UFA en skippa því ef það hefur neikvæð áhrif á hjólið.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap