Dagbók - 27.09.2023
Dagbjört að lesa í nýju peysunni. |
06:50: Vakna, borða, vekja börn og leggjast svo með kaffi í bælið og taka fréttir
07:40: Í barkarí með Dagbjörtu að kaupa kleinuhringi sem frjálst nesti.
07:55: Mæta í vinnu og taka einn bolla með félögunum- vinna vinna. (Rest af smoothie og hrökk kl.10)
11:20: Hljóp yfir í Háskóla að ná mér í snemmbúinn hádegismat þar sem ég var með kynningu fyrir ráðherra kl. 12:00. Keypti salat með allskyns góðgæti og nýtt brauð.
14:30: Hætti í vinnunni og fór heim til að hitta Dagbjörtu og vinkonu hennar. Hringdi vinnusímtal og gekk aðeins frá. Borðaði banana.
15:15: Tókum strætó á Glerártorg til að kaupa peysu sem ég pantaði fyrir Dagbjörtu í Lendex. Fór í Nettó.
16:10: Tókum strætó heim og ég klippti mig og rakaði. Gekk aðeins frá og græjaði mig fyrir ræktina. Borðaði Trek orkustykki.
17:10: Fór með Hörpu að skoða útsölu í 66°N.
17:45: Brennsla í ræktinni. Skrítinn tími sem snérist eiginlega bara um að grilla á okkur axlirnar. Drakk einn brúsa af vatni.
19:00: Kom heim, henti kjötbollum í ofn, sauð hrísgrjón og fór í bað. Fékk mér smá Hleðslu.
20:00: Hjálpaði Dagbjörtu að lesa.
20:20: Kíkja á fréttir
21:00: Klára að taka okkur til fyrir morgundaginn, ganga frá þvotti og laga aðeins til.
Hápunktar dagsins: Kynning á veiðistjórnun á rjúpu fyrir ráðherra sem tókst gríðarlega vel. Ósvikin gleði Dagbjartar Lóu að hafa með sér smoothie og kleinuhringi í frjálst nesti á náttfatadegi. Það er gaman hvað börn þurfa oft lítið til að gleðjast. Henni fannst þetta "geggjaður" dagur. Já og gleðin yfir peysunni var ósvikin!
Lágpunktur dagsins: Þegar ég kom heim úr ræktinni hugsaði ég að það væri nú allt í lagi að taka smá kolvetnaskot eftir erfiðan tíma. Fékk mér eina hindberja og lakkrísbombu og braut strax stórt brot úr tönn. 4 skiptið á rúmlega 2 árum sem ég brýt tönn á nammi. Var hjá tannlækni á föstudaginn að láta laga eitt brot og það kostaði 35 þúsund😡 Held að ég borði ekki hart nammi framar 🥲
Ummæli