2 frábærir veitingastaðir

Himalayaplatti fyrir tvo.

Ég er búinn að vera í Reykjavík alla vikuna. Ég hef verið á krefjandi vinnufundum og hef því ekki náð að gera neitt annað. Ég reyndar henti mér tvisvar út að hlaupa og einu sinni í ræktina í 30 mínútur. Það er allt og sumt. Ég er búinn að stilla upp hlaupaæfingum til að gera lappirnar klárar fyrir Hausthlaup UFA sem er á miðvikudaginn í næstu viku. Ég er með hóflegar væntingar en lappirnar virðast bregðast ágætlega við þessu. Ég held að ég ætti alveg að geta haldið 4:30 pace í 5 km og verið í kringum 22 mínútur.

Ég klára svo vikuna með hlaupi og hjóli á morgun og hjólaæfingu á sunnudag og er á biðlista í tíma í ræktina í fyrramálið.

Það er kannski ekki rétt að segja að ég hafi ekkert náð annað að gera því ég náði að hitta pabba sem er á landinu. Við fórum út að borða með Gísla Árna og áttum alveg ótrúlega góða stund. Við fórum á nýjan ítalskan stað á Hverfisgötu sem heitir Gracias Trattoria og ég mæli eindregið með honum. Einfaldur og frekar ódýr matseðill en maturinn upp á 10. Get bæði mælt með sjávarréttapasta og pizzu sem heitir Diavola.

Annar staður sem er alveg upp á 10 er Himalaya Spice sem er rétt hjá Búllunni og Hotel Marina. Maturinn er mjög svipaður og indverskur matur en gæðin voru fram úr öllu valdi. Við vorum tveir og fengum okkur blandaðan platta með ýmsum réttum. Það sem stóð upp úr var dumplings, sterkur grænmetisréttur og risarækjur. 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap