Of fáir svona túrar

Ég, Jóhann og Þórunn Erla frænka mín.

Það er ein regla sem er mikilvægt að fylgja og það er að taka frídagana á hjólinu heilaga. Stundum er gott að liggja bara sem mest fyrir allan daginn en það er líka alveg í lagi að hjóla smá ef maður er dauðrólegur. Fer eftir því hvað maður er grillaður. Einn kosturinn við að taka stuttan og auðveldan túr er að manni líður oft betur andlega og er ferskari daginn eftir.

Veðrið í dag var svo gott að ég ákvað að hjóla í rólegheitum út í Hrafnagil. Ég hjólaði svo rólega að eldri hjón á rafhjólum tóku fram úr mér. Það var pínu erfitt að sitja á sér en ég náði að hemja mig. Mér leið ótrúlega vel og naut þess bara að horfa í kringum mig og hlusta á podcast. Einbeitti mér að stöðunni á hjólinu og andardtrættinum. Hjartsláttur og vött voru í sóni 1 allan tímann og það er langt síðan mér hefur tekist að taka hreinræktað recovery ride.

Ég ákvað svo að fá mér kaffi í Jólahúsinu og þar hitti ég Þórunni frænku og Jóhann. Við áttum notalegt spjall og það var gaman að hitta þau. Á leiðinni úr bænum og leiðinni til baka stoppaði ég svo í miðbænum og fylgdist með hlaupurum í Súlum Vertical koma í mark. Hitti engan sem ég þekkti en það var mikil stemmning í bænum. Við Brynleifur hjóluðum svo í sund áðan og keyptum kjúkling í kvöldmatinn á leiðinni heim.

Frábær dagur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap