Held ég hafi sloppið fyrir horn....

Haribo Eggin 

Ég var aðeins að skrifa eitthvað um nammihlaup hérna um daginn sem ég hef aðeins verið að taka með mér á hjólið. Ég bar saman kolvetnainnihaldið í því við orkugelin sem maður hefur verið að kaupa og reiknast til að úr einum pakka af spæleggjum, sem kostar um 300 kr., fái maður sama magn af kolvetnum og úr fimm SiS gelum. SiS gel kostar minnir mig um 250 kall og þetta er því næstum 5 sinnum ódýrara. 

Gelin hafa samt kosti umfram nammið. Þau skila sér hraðar út í meltinguna, innihalda meiri vökva og "réttara" hlutfall af mismuandi sykrum (frúktósi, glúkósi, súkrósi, maltodextrin). Þau innihalda líka oftast sölt sem er mikilvægt þegar maður er að svitna mikið. Eggin koma aldrei í stað orkugels þegar maður er að keppa en eru frábær kostur til að spara pening þegar maður nennir ekki að taka með sér alvöru mat. Maður þarf bara að passa að taka með allavega einn brúsa með söltum líka þegar maður er að fara mjög langt.

Í síðasta pistli var ég að hafa áhyggjur af því að ég hafi verið búinn að ýta mér fram af brúninni í æfingaálagi upp á síðkastið. Ég ákvað því að vera frekar rólegur í dag og sjá hvernig mér liði. Eftir vinnu í dag hjólaði ég í 2 klst á Z2 (endurance pace) og mér leið alveg geggjað vel. Ég var úthvíldur og fannst ég geta rifið pedalana af hjólinu. Þvílíkur léttir. Á morgun ætla ég að taka 1-2 tíma mjög létt en henda inn nokkrum "all out" sprettum til að skerpa bífurnar. Síðan er hvíld á fimmtudaginn og léttur klukkutími á föstudaginn.

Ég er vægast sagt orðinn spenntur fyrir Orminum og kíki á keppendalistann oft á dag. Skráning er ennþá dræm og eins og staðan er núna þá eru ekki margar sleggjur komnar á blað. Ég á að eiga fína möguleika enn sem komið er. En mér finnst líklegt að það breytist og það verður bara jákvætt að hafa harðari keppni. Markmið mitt fyrir sumarið var að komast á pall í Orminum og ég mun gera mitt besta, en ég er líka meðvitaður um að ég ræð ekki við hverjir skrá sig eða í hvernig formi þeir eru. Ég hef bara stjórn á því hvernig ég æfi, ét og sef fram að keppni.

Ég er mikið búinn að pæla í hvernig ég legg þetta upp taktískt en svoleiðis plön fara hvort sem er yfirleitt öll út um gluggann þegar flautað er til leiks. En miðað við núverandi skráningu þá eru allavega 2 hjólarar sem ég veit að ég má ekki missa af stað öðruvísi en að elta þá. Allar pælingar um hvort eða hvenær maður gerir árásir verður bara að ráðast af dagsforminu hjá mér og öðrum. En ég verð að viðurkenna að mig langar að prufa að gera árás og stinga af eftir ákveðnar brekkur en það er kannski ekki skynsamlegt að reyna það akkúrat í þessu móti ef mér er mjög annt um lokaniðurstöðuna. Kemur í ljós.

Mataræðið í dag hefur verið fínt. 

  • Hafragrautur með ávöxtum og eggi
  • 3 hrökkbrauð með osti og Hleðsla
  • Banani, brauð með síld og smá hleðsla
  • Banani, 2 orkustykki og slatti af vatni á hjólinu
  • Hamborgari og full skál af salati með kjúklingabaunum og fetaosti.
Var ánægður með tvistið að sleppa fröllum og éta slatta af salati og baunum í staðinn. Jæja hef ekki tíma í þetta.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap