Frábært veður í gær og fín æfing

Kýrin hennar Beate komin upp við Saurbæ. Stórkostlegt listaverk.

Í gær ætlaði ég taka 2 tíma rólegt endurance en endaði á því að keyra hraðann óþarflega mikið upp. Ástæðan var annarsvegar sú að veðrið var alveg frábært og því auðvelt að halda hraða og svo leið mér bara fjandi vel. Ég fór fram að malbiksenda og á leiðinni til baka var ég staðráðinn í að lengja upp í 100 km og stoppaði á Smámunasafninu til að kaupa smá aukaorku (marsipansúkkulaði). En þegar ég fór að nálgast Grund fann ég að ég var aðeins að dala og ákvað að fara bara beint heim og eiga eitthvað á tanknum. Þetta endaði sem rétt rúmlega 70 km, 1700 kgcal, 125 TSS og meðalhraði 31,6 km/klst.

Vikan á Training Peaks. Ég er að fara töluvert langt fram úr áætlun þessa dagana en á eftir 2 vikur til að skrúfa niður og jafna mig.

Ég var búinn að ákveða að hvíla í dag (laugardag) en ef veðrið verður svona ljúft og gott er ég að spá í að taka mjög rólegt recovery út í Hrafnagil seinnipartinn. Á morgun stefni ég svo á 3-4 klst. rólegt.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap