Æfingar fram að móti - "tapering", matur ofl
Síðustu tvær vikurnar fyrir Orminn. |
Mig langaði bara að henda hérna inn smá pælingum varðandi æfingar síðustu tvær vikurnar fyrir Orminn. Tour de Ormurinn er 100% uppáhalds keppnin mín og því er ég að leggja mig allan fram um að æfa eins vel og skynsamlega og ég get fyrir þessa keppni. Það er svolítið erfitt að vera mótíveraður í þetta núna svona seint á tímabilinu því ég væri alveg eins til í að vera bara að hjóla eins mikið og ég get (veðrið hefur verið fínt) og reyna að bæta bestu tímana mína upp einhverjar brekkur.
Það er ekki til neitt gott orð yfir „tapering“ á íslensku svo ég viti en það getur þýtt að skerpa. Þetta er ferlið sem ég er í núna. Tapering tímabil er þegar maður skrúfar niður í æfingamagninu en eykur aðeins við ákefðina til að auka/viðhalda snerpunni en jafna sig á álaginu á móti (hvíld). Hlaði maður vel upp álagi í aðdragandanum og geri þetta rétt, þá toppar maður í kjölfarið. Og það er list að gera það á réttan hátt og á réttum tíma. Eitthvað sem ég er bara að þreifa mig áfram með og prufa.
Ormurinn er frekar stutt keppni (68 km) og á fyrri helmingnum er mikið af stuttum bröttum brekkum. Ákefðin er því hrikalega mikil í upphafi og hópurinn splittast strax upp. Maður þarf að fara reglulega inn í rauða sónið en samt geta viðhaldið kraftinum áfram til að hanga í hópnum niður brekkurnar. Þetta eru endalausar hraðabreytingar og læti. Ég henti því inn 30/30's æfingum þar sem maður tekur spretti í 30 sek og "hvílir" sig í 30. Þetta endurekur maður 2x og gerir 10 spretti í hvort skiptið, samtals 10 mín í efsta sóni. Síðan ætlaði ég að taka eina VO2 max æfingu til viðbótar og svo frjálsar æfingar með smá brekkum.
Í fyrradag tók ég 30/30's og var þrusu ferskur. Hélt ca. 430 vöttum og háu cadenci í öllum sprettum. Í gær var svo komið að 6 x 3 mín VO2 max sprettum en ég var alveg að skíta á mig. Ég hætti eftir tæplega 2 spretti og sá að það var ekki nokkur glóra í þessu. Það eru sjálfsagt fleiri en ein skýring á því hvað ég var dapur á þessari æfingu í gær og finnst mér líklegast að það hafi verið vegna þess að i) æfingin daginn áður var drulluerfið, ii) ég er byrjaður að vinna á fullu og það hefur verið mikið að gera og iii) ég hef ekki verið að næra mig nægilega vel fyrir æfingarnar. Þegar ég kom heim eftir æfingu í gær þrusaði ég í mig slatta af hafragraut, 2 eggjum og brauði með kavíar. Drakk líka vítamín og magnesíum og þá fór ég allur að hressast. Það er hvíldardagur hjá mér í dag en svo bara frjáls æfing á morgun, kannski með smá brekkum ef mér líður vel.
Ávextir í kaffinu í dag til að bæta upp fyrir smá hliðarspor. |
Eins og kom fram í síðasta bloggi þá hef ég verið á réttri braut í mataræðinu en ég tók smá hliðarskref í gærkvöldi og í dag. Harpa rak mig fram úr rúminu í gærkvöldi til að fá mér eitthvað að éta því ég var að drepast úr hungri. Ég missti mig aðeins í bakkelsi, sykruðu múslí og drakk eina hleðslu. Í hádeginu í dag enduðum við Bjarni Páls svo í Bessabita (hammari og franskar). En ég er ekkert að pína sjálfan mig á þessu heldur klappa mér frekar á bakið fyrir hollt mataræði mestalla vikuna. Í kaffitímanum áðan át ég svo ávexti og drakk vel af vatni til að ná inn hollri næringu. Smá svindl gefur manni ekki leyfi til að halda því bara áfram. Það er ekki eins og ég hafi eyðilagt neitt. Svo reynir maður að halda sér á beinu brautinni um helgina en ætla samt að leyfa mér að borða eitthvað nammi og fara í bakarí á sunnudagsmorguninn til að kaupa eitthvað til að maula yfir sjónvarpinu þegar Silja og Hafdís keppa á HM.
Ummæli