Brjál
Æfingin á mánudaginn sem var frekar þreytt. |
Vikan hefur s.s. verið ágæt en það hefði verið fínt að sleppa við að vinna. En ég réð s.s. ekki við það og vann allan þriðjudaginn, tók fundi í dag og þurfti að hringja einhver símtöl. Síðan þarf ég að vakta póstinn eitthvað áfram og fylgjast með einhverjum erindum. Leiðinlegt og slítandi að fara svona inn í fríið. En það er góð helgi framundan og við Harpa leggjum af stað suður í fyrramálið að keppa á þriðja og síðasta bikarmótinu. Eftir það erum við í keppnisfríi fram til 19. ágúst.
Ég tók VO2 max æfingu á mánudaginn sem fór eitthvað fyrir ofan garð og neðan en svo hefur verið einhver samsláttur í hausnum á mér því ég setti aðra VO2 max æfingu í gær. Það var eiginlega sama sagan- ég var eitthvað hálf þreyttur og sleppti síðasta settinu. Í dag tók ég svo 2 klst ofarlega í zone 2 og leið super vel. Fór rúma 60 km. á tæpum tveimur tímum og hélt 31 km/klst meðalhraða. Hefði getað haldið lengi áfram.
Hef engar væntingar um mótið um helgina og er frekar rólegur yfir þessu. Bara reyna að hanga í hópnum og hitta gaurana sem maður er nú farinn að þekkja betur og betur. Kemur allt í ljós... nú hljótið þið að sjá að ég hef engan tíma til að skrifa og þetta er að renna út í sandinn............ góða nótt
Ummæli