Bilað hjól og skipulagning hjólaferð

Úr hjólaskúrnum

Þegar ég keypti nýja hjólið á sínum tíma var ég ekki mjög fjáður og var að spá í að ná inn smá aur með því að selja gamla hjólið. Tilhugsunin um að eiga það tilbúið á trainer inni var bara svo helvíti hugguleg að ég ákvað að sleppa því. Þess í stað ætlaði ég að selja vatta-pedalana og henti tvisvar inn auglýsingu á Facebook. Þeir seldust aldrei.

Um daginn þegar ég steikti bremsudæluna á nýja hjólinu var ég mjög ánægður með að hafa ekki selt þetta dót og gat tekið æfingar úti eins og ekkert hefði í skorist. Núna eru rafmagnsskiptingarnar á nýja hjólinu bilaðar og ég því aftur kominn á gamla hjólið. Skiptingarnar á nýja hjólinu er Sram Rival og ég er búinn að vera hrikalega ánægður með þær og nokkuð hissa á að þær hafi klikkað. Ég skildi hjólið eftir niðri í Útisport í gær og hef ekkert heyrt. Það var búið að uppfæra þær en þær voru ekki að tala saman og duttu inn og út.

Æfing dagsins var heimatilbúin over/under frammi í firði.

Eftir verðskuldaðan hvíldardag í gær henti ég mér út um hádegi í dag og tók tæplega tveggja tíma æfingu sem ég var búinn að vera með á teikniborðinu í smá tíma. Hugmyndin með henni var að líkja eftir aðstæðum í keppni og ég var með Orminn í huga. Ég hjólaði rólega út að Espihólsbrekkum en gaf svo vel í upp brekkuna í 1,5 mín (+300 W) og reyndi svo að halda ca. 250 W þangað til ég var kominn langleiðina niður brekkuna að Grund. Þá snéri ég við og endurtók leikinn í hina áttina, og svo aftur til. Þetta voru því fjögur frekar stutt sett af over/under sem ég negldi helvíti vel. Ég var frískur eftir hvíldardag, veðrið í lagi (á okkar mælikvarða) og þetta var helvíti gaman.

Ég elska að búa til svona æfingar þar sem maður reynir að líkja eftir aðstæðum sem gætu komið upp í keppni og nota landslagið sem er í boði í staðinn fyrir að setja allt upp eftir klukku og vöttum. Markmiðið með þessari æfingu var að líkja eftir því að gefa vel í upp brekku (og vonandi þreyta einhverja) en geta svo stungið af þegar upp er komið. Annað sem ég var að leggja áherslu á var að gera þetta á háu cadence (pedalsnúningur) og reyna að halda miklu poweri niður brekku líka. Maður hefur verið svo fastur í að gera allar threshold æfingar í brekkum en það er mikið meira krefjandi, og líkara aðstæðum í keppnum hérna heima að þurfa að halda upp afli á flata og/eða niður brekkur.

Á morgun er ég að spá í að taka Eyjfjarðarhringinn og enda svo á því að fara einu sinni upp í Skíðahótel. Á fimmtudaginn er ég svo að spá í að taka langa endurance æfingu. Helgin er óráðin en ég er að reyna að skipuleggja hjólaferð með börnunum. Það er mikið púsluspil þar sem ég þarf sjálfur að bera allt dótið því þau eiga hvorki töskur né bögglabera. Ef af verður verður þetta mjög minimalísk ferð. Einfaldur matur og lítið af fötum til skiptanna. Kemur í ljós.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap