Kominn aftur í "Build Phase"

Við Harpa fórum fram í fjörð um helgina að hjóla og gátum ekki annað en stoppað við þessa litadýrð.

Nú er fyrri toppurinn minn á tímabilinu búinn, hvíldarvika að baki og þá þarf maður að hlaða inn klukkutímum aftur og fara inn í nýtt uppbyggingartímabil, eða "build phase". Það snýst í rauninni um að hlaða upp TSS (Training Stress Score) fyrir hverja æfingu sem hækkar svo CTL (Cronic Training Load). CTL er tala sem er reiknuð út frá hlaupandi meðaltali æfinga síðustu 40 daga. Því hærra CTL, því meira hefurðu æft og ættir tæknilega séð að vera í betra formi. CTL-ið mitt er 80 núna sem er ágætt, sérstaklega miðað við að ég hafi tekið 5 daga alveg í hvíld.

Síðustu 4 vikur á Strava hjá mér.

Síðustu 4 vikur hjá mér hafa gengið þokkalega og eru nokkurn veginn eftir plani. Vikan með 5:41 klst. var vikan fyrir Mývatnshringinn (aflýst) og það var eftir matseðlinum. Síðan kom keppnisvikan þar sem ég hélt líka plani. Ég endaði í tæpum 5 klst í hvíldvarvikunni en fyrstu 5 dagana var hreyfingin bara eitthvað smá hjólerí með börnunum og göngutúrar. Síðsutu viku kláraði ég svo með stæl í gær og endaði með svipað TSS skor og fyrir heila viku á Tene.

Þessa vikuna á ég líka að skila 10 klst. en það verður meira en að segja það. Það er hvíldardagur í dag en svo tek ég HFA æfingu (þriðjudag). Á miðvikudaginn fer ég með hjólið í vinnuferð til Egilsstaða og er að hugsa um að hjóla á Seyðisfjörð eða taka hringinn í kringum Löginn (Ormshringinn). Ég kem seint heim á fimmtudag en ætla að reyna að ná æfingu og svo verð ég eiginlega að ná að hjóla bæði á föstudag og laugardag. Á laugardagskvöld flýg ég svo suður og til Frankfurt á sunnudag.

Laugardagsæfingin hjá mér og Hörpu var geggjuð. Við byrjuðum á VO2 max æfingu í Laugalandsbrekkunni og bættum svo við "njóta-rúnt" inn að malbiksenda. Á leiðinni til baka fórum við Veigastaðarbrekkuna og stoppuðum á útsýnispallinum við göngin til að kíkja á skemmtiferðaskipin. T.v. Giant TCR 2022 og svo nýja Liv Langma SL hjólið hennar Hörpu.

Ég verð í Bonn að vinna frá 18. - til 22. júní og svo er ég að fara að keppa á Íslandsmótinu á Þingvöllum laugardaginn 24. júní. Ég þarf því að reyna að halda mér volgum með því að fara á eitthvað æfingahjól í ræktinni á Marriot hótelinu í Bonn. Það er náttúrulega ekki ideal vikuna fyrir mót en maður vinnur með það sem maður hefur. Annars er þetta mót á Þingvöllum ekki ofarlega á lista hjá mér og brautin hentar mér engan veginn þar sem hún er nánast alveg flöt. Ég mun því þurfa að hafa mig allan við að halda mér í hópnum. 

Harpa að hjóla framhjá repjuakrinum sem ég er með á heilanum.

Annars er ég bara góður og finnst formið vera mjög gott. Líður vel, sæll og glaður!

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap