Íslandsmeistaramót - Recap

Eina myndin sem ég finn af mér frá Íslandsmótinu í götuhjólreiðum á Þingvöllum. Hvar er Valli?
Mynd: Steinarr Bragason

Jæja þá er annað mót ársins búið (Íslandsmót) og það gekk svona upp og ofan, að mestu vel- ég er nokkuð sáttur. Vikan og hvíldin úti í Þýskalandi virðist ekki hafa haft of neikvæð áhrif á mig því ég var bara býsna sprækur. En eins og kom fram í póstinum á undan þá var ég hrikalega stressaður fyrir þetta og reyndar bara ekki í neinu stuði til að keppa. Það breyttist þó fljótt eftir að við vorum ræstir út.

Undirbúningur

Eins og fram hefur komið eyddi ég vikunni á undan í Þýskalandi í óþarflega miklum vellystingum. Ég passaði mig samt á því að næra mig vel, sérstaklega á morgnana þar sem ég tróð í mig eggjum, kornmeti og annari hollustu og svo var hádegismaturinn í húsi Sameinuðuþjóðanna í Bonn alltaf hollur og góður. Ég fór aðeins í ræktina, kíkti á æfingahjól, hljóp einu sinni og svo gekk ég mikið. Eftir að ég kom heim hjóluðum við Harpa einn stuttan hring og svo reyndum við bara að hvíla okkur eins og við gátum.

Yfirleitt þegar við keppum erum við ræst út snemma að morgni en í þetta skipti var ræsing klukkan 17:00. Okkur fannst þetta báðum mikið síðra því maður hafði allt of mikinn tíma til að vera að velta sér upp úr þessu. Við sátum bara og vorum að bíða allan daginn. Þá er betra að vakna bara klukkan 06:00, moka í sig hafragraut og hlaupa út.

Brautin

Leiðin sem B-flokkur karla fór, 101 km.

Brautin sem ég fór var réttsælis hringur í kringum Þingvallavatn plús 17 km minni hringur, samtals 101 km. Leiðin er einhver sú skemmtilegasta sem ég hef hjólað í keppni og það var ekki jafn mikil umferð og maður hefði búist við. Brautin er frekar flöt til að byrja með en síðan koma nokkrar hækkanir og brekkur sem áttu sannarlega eftir að koma við sögu.

Veður

Það var nokkur blástur þegar við komum á svæðið og ca. 15°C hiti. Það breyttist ekki fram að ræsingu og við vorum með vindinn í fangið þangað til við beygðum upp Grafningsveg neðri, það var s.s. SA-átt. Þegar 20-30 km voru eftir fór svo að rigna.

Keppnin

Ég kom mér fyrir í miðjum hópnum og hélt mig þar til að byrja með. Ég tróð mér reyndar fremst fyrir fyrstu brekkurnar rétt norðan við þjónustumiðstöðina til að dragast ekki aftur úr á leiðinni niður hinumegin. Eftir þetta róaðist nokkuð í hópnum og fáir þorðu að gera árásir upp í vindinn. Mér leið super vel og fannst ég eiga endalausa orku. Ég hafði í rauninni engar sérstakar áhyggjur af því að missa hópinn þó ég væri kominn aftarlega þegar leið á.

Eftir að við fórum yfir Sogið og fórum að halda í norður aftur (Grafningsvegur neðri) fengum við vindinn í bakið og þó tók hópurinn við sér. Ég þurfti að setja nokkuð power í að halda í við hópinn, en eins og ég segi þá var ég frekar rólegur með þetta. En rétt við Úlfljótsvatn splittaðist pelotonið svo upp í tvennt og ég var í aftari hópnum. Þegar við vorum komnir ca. 45 km kom svo lítil brekka og þar var gerð árás sem ég reyndi að fylgja eftir en lappirnar sögðu "NEI". Þarna var ég kominn einn á auðan sjó og ég ætlaði ekki að trúa þessu. Þetta gerðist svo hratt og ég búinn að vera í svo góðum gír. En það var ekkert annað að gera en að bíta á jaxlinn.

Fljótlega eftir þessar hörmungar náði ég Valdemari sem er frá Akureyri og við fórum að skiptast á að taka púll. Eftir að hafa rúllað 3-4 hringi lít ég svo aftur og sé að hann er að dragast aftur úr. Ég skildi hann því eftir og hélt bara áfram. Fljótlega eftir það næ ég svo einum ungum strák úr HFR og við fórum að vinna saman til að ná hópnum. Síðan bættust tveir við, Valur úr Bjarti og einn gaur úr Tindi. Við fjórir unnum svo ágætlega saman þar til það fóru að koma brekkur en þá fannst mér þeir orðnir svo grillaðir að ég hélt að ég ætti betri möguleika á að ná næsta hópi einn, þannig að ég stakk þá af. 

Þegar ég var svo kominn að langri brekku við Litla-Sandfell (þar sem íslenska elítan á sumarbústaði) var ég farinn að nálgast næsta hóp býsna mikið. Þetta gaf mér von og núna ákvað ég að setja allt í þetta. Útlitið var samt ekkert of glæsilegt, það var farið að mígrigna, ég búinn með allt vatn (einn fullur brúsi datt af í hossu) og orðið hálf óglatt af koffíngelinu, sem helst þarf að skolast niður með vökva. 

Þegar ég kom niður á Þingvallaveg er útlitið alltaf að skána og ég nálgast þá alltaf meira og meira. Ég hjólaði svo framúr einum gaur þar og þá voru eftir 4 í þessum hópi. Í brekkunum rétt eftir þjónustumiðstöðina tók ég svo fram úr öðrum gaur og þá voru bara 3 eftir (þetta er að verða eins og 10 litlir negrastrákar). Nú lagði ég allt í sölurnar og komst næstum í haglabyssufæri við þá þegar það voru 700 metrar eftir en þá ráku þeir augun í mig, gáfu í og nær komst ég ekki. 

Niðrustaðan var 13. sæti og ef ég hefði verið spurður að því á ráslínu hvort ég tæki þetta sæti þá hefði ég sjálfsagt sagt já. En ég var líka svekktur því ef ég hefði náð að halda mér í hópnum hefði ég eflaust gert ágætis hluti. Ég var einn á auðum sjó síðustu 40 kílómetrana en náði samt að halda 33,7 km/klst og hjólaði uppi 7 gaura og stakk þá af.

Orkuinntaka

Eins og ég kom inn á áðan þá tapaði ég heilum brúsa af kolvetnablöndu með steinefnum og það var ekki gott. Ég hef verið orðinn vel þurr í lokin og kannski hafði það áhrif á mig. En annars drakk ég einn brúsa af vatni og át 8 gel, þar af 3 með koffíni. Ég var að drepast í maganum þegar ég kom í mark en það fylgir þessu.

Helstu tölur

Helstu tölur úr Training Peaks.

Nenni s.s. ekki að eyða mörgum orðum í þessar helstu tölur en þær eru s.s. ekki ósvipaðar og í síðustu keppnum.

Nokkrir punktar

Fyrir tímabilið reyndi ég að vera duglegur við að taka threshold æfingar til að gera mér auðveldara fyrir að hanga í stærri mönnum á flatlendi. Ég held að það hafi skilað einhverjum árangri en í staðinn vantar mig smá "punch" í brekkurnar. Ég þarf að leggja áherslu á að VO2 max, tabata og styttri spretti það sem eftir er af tímabilinu.

Þegar ég datt úr hópnum fannst mér ég vera að gera mitt besta en kannski sofnaði ég aðeins á verðinum og var ekki nógu grimmur að koma mér fremst í hópinn. Ekki í fyrsta skipti.

Stóra myndin

Ég náði 2 mótum í fyrra áður en ég slasaði mig og ég var í síðasta sæti í þeim báðum. Núna er ég búinn með 2 mót og ég hafnaði í 14. sæti í því fyrra og núna í því 13. Ég er rétt fyrir neðan miðjan hópinn og þetta er því framför. Maður verður að horfa á stóru myndina.

Ég stefni að sjálfsögðu að því að gera ennþá betur næst og ef ég kæmist í top 10 þá væri tímabilið vel heppnað. Ef ég nenni að taka næsta tímabil þá er stefnan að koma mér á þær slóðir.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap