Hvíldin

Í dag setti ég styttri stamma á hjólið og mér fannst það gera því gott á alla vegu.

Ég var búinn að ætla að skrifa aðeins um hvíldina sem ég tók í síðustu viku og hvaða áhrif hún hafði á mig. Í stuttu máli þá var þetta SVO rétt ákvörðun. Ég er fullur af orku og mér finnst ég geta brotið hjólið og slitið keðjuna þegar ég er að hjóla. Svo er ég líka bara vel mótíveraður eftir þetta og fullur tilhlökkunar að takast á við æfingar komandi vikna.

Siggi Bikefit lagði það til við mig í fyrra að ég myndi kaupa mér 2 cm styttri stamma á hjólið. Stammi er í rauninni stykkið sem festir stýrið við stýrisöxulinn og ýtir því fram (lárétta stykkið fyrir aftan stýrið). Því lengri sem hann er því lengra þarf fólk að teygja- og halla sér fram. Ég er náttúrulega frekar lítill og þetta hjól hefur aðeins verið dregið niður í dómum fyrir að vera með mikið "reach", þ.e. langt frá hnakk og fram á stýri.

Nú jæja, ég lét loksins verða af því að setja stammann á og það fyrsta sem ég tók eftir var að mér finnst hjólið lúkka betur, sem skiptir s.s. engu máli. En þegar ég fór að hjóla fann ég hvað þetta munaði mig ótrúlega miklu... og þetta voru bara 2 cm.! Þetta ýtti mér aftar á hnakkinn og ég sit miklu betur á hjólinu. Það er einfaldlega betra að hjóla á því. Annað sem gerist er að það verður öðruvísi að stýra því þar sem snúningsásinn er orðinn styttri. Það er miklu næmara í beygjunum og maður þarf aðeins að passa sig. Mér finnst það samt til bóta.

Útisport er búið að redda mér nýrri bremsudælu í láni að aftan þar sem hin steiktist í klessu og er ónýt. Ég ætla svo að panta nýja frá Þýskalandi en fæ að hafa þessa þangað til. Ný dæla kostar ca. 8000 krónur hingað komin, s.s. engir stórir peningar. 

Mér fannst alltaf gamli staminn frekar langur og ljótur. Þetta lúkkar betur.

En hvernig var svo að komast yfir á nýja hjólið aftur eftir að hafa verið að hjóla á því gamla? Jú það er betra, ég finn mun og tæki það alltaf framyfir. Gamla er samt geggjað og gott að eiga til vara.

Annars er ég með rosalegan pistil í smíðum og á ekki langt eftir. Hann er hugsaður sem gateway drug inn í Tour de France. Ég er að fara yfir allt það helsta sem ég tel skipta máli fyrir fólk að vita ef það hefur áhuga á að byrja að fylgjast með þessu. Ég er nokkuð ánægður með hann og held að hann geti bara orðið prýðis skemmtilegur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap