Bonn

Með góðum vinum í Bonn.

Jæja þá er maður kominn á þessu djöflaeyju eins og maðurinn sagði. Löppin á mér er heldur að batna en ég á enn eftir að prufa að hjóla og sjá hvernig þetta kemur út. Íslandsmótið er á morgun og ég er orðinn helvíti stressaður fyrir þetta. Ekkert búinn að hjóla neitt í viku og veðrið hérna í höfuðstað helvítis er vægast sagt leiðinlegt. Ausandi rigning og vindur og útlit fyrir að þannig verði það á morgun líka. Ég er alvarlega farinn að spá í hvort ég sleppi þessu en líka hræddur um að ég muni sjá eftir því.

En vinnuferðin til Bonn var hinsvegar alveg frábær og ég er svo ánægður með að hafa látið mig hafa það að fara. Það var frábært að hitta allt þetta skemmtilega fólk eftir langan tíma og ég kynntist líka fullt af nýju skemmtilegu fólki sem á eftir að koma sér vel í þeim verkefnum sem við erum að vinna hérna heima. Það kom mér líka á óvart hvað það voru margir þarna sem voru veiðimenn. Já, vísindamenn geta líka verið veiðimenn. Veðrið var heldur ekki til að væla yfir, 30°C hiti alla daga. Fólk var reyndar að kvarta yfir að það væri of heitt því það var svo rakt.

Við Harpa búin að leggja undir okkur hús Helgu systir hennar.

En Þýskaland kom mér á óvart. Ég hélt að þar væri allt svo vel skipulagt og gott að ferðast þar. Raunin var hinsvegar sú að lestarkerfið er í steik, erfitt að fá upplýsingar og fólk oft dónalegt. Það var helst í húsi Sameinuðuþjóðanna þar sem manni fannst votta fyrir hinu "þýska skipulagi". En ég ætla ekki að dæma allt þýskaland út frá þessari stuttu ferð á afmarkað svæði. Utan við veðrið þá stóð maturinn upp úr; hæfilega dýr, vel útilátinn og alltaf mjög góður.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap