Langur sunnudagur
Í nýja Pedla stakknum sem Harpa gaf mér. |
Ég var búinn að stefna að því að taka langan sunnudag og stóð við það. Ég lagði af stað um kl. 11:30 í gærmorgun og hélt út á Dalvík. Þar stoppaði ég aðeins í sjoppunni og fékk mér ís og kaffi. Þaðan fór ég svo hringinn í Svarfaðadal og heim aftur með smá viðbót í bænum.
Túrinn gekk fínt og ég var í ágætu formi. Ég passaði mig að halda mig bara mest í Z2 og var aðalega að fylgjast með púlsinum. Túrinn var 113 km og ég hélt 28 km/klst. Í lokin var ég að spá í að taka 10 km í viðbót en ákvað svo að vera skynsamur og segja þetta gott.
Í túrnum brenndi ég 2800 kcal en ég heldað ég hafi farið langt með að núlla það með öllu sem ég át á ferðinni. Það er sennilega skýringin fyrir því að ég hefði alveg getað haldið áfram og fannst ég eiga nóg inni. Matseðillinn:
- 2 fajitas með Nutella og banönum
- 1 orkugel
- 1 SiS orkustykki
- 1 Ís í formi
- 1 Toffee Crisp
Ég finn fyrir smá þreytu í löppunum í dag en það er varla til að tala um. En var gjörsamlega úrvinda úr þreytu eftir vinnudaginn og átta mig ekki á því hvort það eru timburmenn eftir túrinn eða eitthvað vinnutengt. Sennilega sitt lítið af hvoru. Síðasta árið hef ég tekið vel eftir því hvað vinnutengt álag tekur mikið úr manni. En þá er bara að fara snemma að sofa í kvöld.
Tilbúinn í ferðina með orkugel og orkustyggi (th), fajitas með banönum og Nutella og upprúllaðan vindjakka. |
Í síðustu viku gaf Harpa mér þunnan Pedla jakka sem pakkast smátt og hægt er að hafa með sér í vasa. Þetta er frábær jakki ef það fer að rigna eða kólna. Það er líka geggjað að skella sér í hann áður en maður fer að fara niður langar brekkur. Manni verður svo djöfull heitt þegar maður klifrar upp (t.d. í Hlíðarfjall) en svo er maður að frjósa á leiðinni niður. Ég hafði jakkann með mér í gær og hann kom sér vel þegar ég nálgaðist Dalvík og fékk ískalda hafgoluna á móti mér.
Fyrsta mót sumarsin er um helgina og það er óhætt að segja að ég sé að verða spenntur. Það er góð tilfinning að vera spenntur en ekki bara stressaður. Á morgun ætla ég að skrifa aðeins hvernig ég ætla að undirbúa mig.
Ummæli