Fkn veður...

Þó veðrið sé frekar ógeðslegt þessa dagana, þá er ég nú samt ekki svo svartsýnn að ég þori ekki að taka naglana undan.

Það er brjálað veður hérna í dag og ég slaufaði útiæfingu með HFA. Ég henti mér á hjólið inni í staðinn og ætlað að taka ákveðna æfingu sem er fínn undirbúningur fyrir Mývatnshringinn um helgina. Þetta er hálfgerð over/under æfing sem snýst um að fara upp á mikið afl í stuttan tíma (VO2 max) en detta svo niður í tempo á milli. Maður fær s.s. aldrei alveg hvíld og þetta örvar í stuttu máli þá ferla sem buffera mjólkursýru og hjálpa frumunum að taka hana upp aftur og nota sem orku (laktat) í hvatberunum.

Ég tók hluta af þessari æfingu um helgina og var í fínu formi en í dag var ég langt frá því. Ég var eitthvað hálfslappur eftir vinnuna og fann fljótlega að ég væri ekki með afl í fótunum til að hafast lengi við á svona háum vöttum. Ég hætti því eftir 20 mínútur og tók í staðinn 40 mínútur mjög rólega en henti inn 5 mjög erfiðum 20 sek sprettum. En það er ekkert skipsbrot að þurfa stundum að hætta við æfingu og ég finn alltaf mjög vel hvenær er ráðlegt að breyta til eða bara hvíla alveg. Á morgun tek ég rólegan klukkutíma, síðan er HFA æfing á fimmtudaginn og svo frí daginn fyrir mót.

Kort og hæðarkort af Mývatnshringnum, 98 km leiðinni sem B-flokkur kk og Elite kvk fara

Talandi um mót, þá er skráningin á Mývatnshringinn alveg hræðilega döpur og það eru bara komnir 7 karlar í 98 km. Menn eru nú yfirleitt frekar seinir að skrá sig en þetta er held ég óvenju lélegt. Minnugir veðursins sem var í Mývatnshringnum í fyrra eru menn sennilega að draga það fram á síðustu stundu að skrá sig. Og spáin er ekki góð. Nú spáir hann 2-4°C og mígandi rigningu ef allt fer á versta veg. Það þýðir víst ekkert að velta sér upp úr því en svekkjandi ef fáir mæta.

Annars hefur vikan gengið vel þó það mætti vera rólegra í vinnunni. Ég tók mig til á sunnudaginn eftir að við komum úr sveitinni og rumpaði af tiltektinni í stofunni sem ég var búinn að vera með kvíðaskitu yfir í margar vikur. Ég flokkaði allt, sorteraði og fór með fullt af dóti í geymslu. Mikið óskaplega líður manni vel eftir það.

Solla P hringdi í mig og sagðist hafa fyllt á póstkortalagerinn minn í Vogafjósi. Ég gat því skrifað út nokkuð feitan reikning og það er alltaf gleðilegt. Þar að auki fékk ég 20.000 kr. úr Dyngjunni fyrir póstkortasölu. Ég var búinn að ákveða að pína mig ekki með að setja mig undir pressu að mála fyrir sumarið en núna verð ég að viðurkenna að það ýtir alltaf aðeins við manni að fá pening. Ég veit að það er kannski ekki það sem á að vera helsta ástæðan fyrir því að maður máli, en það er samt ákveðin viðurkenning á því að einhver kunni að meta það sem maður hefur verið að gera.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap