Tempo

2x15 mín tempo æfing sem ég tók í gær.

Eins og ég var að tala um í gær þá er ég farinn að spá mikið meira í "sónunum" hjá mér, þ.e. bera saman hjartsláttarsónin við power-sónin (afsakið sletturnar). Ég er búinn að vera að hjóla meira ofarlega í Z2 miðað við í fyrra og þar fer hjartslátturinn minn að daðra við tempo (sem er eðlilegt). Í gær ákvað ég að taka 2x15 mínútna tempo-æfingu og fylgjast með hvort púlsinn væri í samræmi við ákefðina (vöttin). Það gekk fullkomlega eftir og ég er fór aldrei upp í hjartsláttarsón 4 (sub-threshold). Ég virðist því vera búinn að negla þetta nokkuð vel niður og er mjög ánægður með það. 

Vinnudagurinn í dag var með skrautlegra móti og ég var punkteraður þegar ég kom heim. Ég var búinn að troða svo mikið af æfingum inn í vikuna að ég hafði alveg efni á að taka því frekar rólega. Ég tók samt 35 efri styrk og teygjur og liðkun fyrir mjaðmir.

Á morgun er ég að spá í að fara í ræktina og taka svo klukkutíma rólegt á hjólinu. Á laugardag og sunnudag er miðlungserfiðar æfingar hjá mér en ég vildi ekki stilla upp of löngum æfingum þar sem ég er með börnin hjá mér. Annars líður mér hrikalega vel líkamlega þessa daga og finnst hjólaformið vera að koma aftur þó ég sé mest að einblína á endurance-æfingar.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap