Langur laugardagur

Æfing dagsins, 3 klst og 10 mínútur. Meðalhjartsláttur 122. Bleik lína er vött, rautt er hjartsláttur og gula er snúningur (cadence).

Ég ákvað að lengja um 25 mínútur frá síðustu löngu æfingu og skrúfaði því niður um 10 vött þar sem hjartslátturinn síðast var farinn að leka upp í tempo í lokin. Ég var í 155 w í dag og fljótlega náði púlsinn jafnvægi í tæplega 120. Eftir 2 tíma þutfti ég að fara að pissa og eftir það reis hjartslátturinn töluvert (sem er sennilega bara tilviljun) en fór samt sjaldan upp í tempo (10 mínútur í heildina). Ég hugsa að ég haldi mig við 155 vött í næstu löngu æfingu en lengi þess í stað um 10-15 mínútur.

En æfingin var s.s. mjög góð þó það sé að sjálfsögðu mjög krefjandi að sitja á hjólinu í meira en 3 klst. Til að gera það bærilegra hægði ég snúning úr 85 niður í svona 50-55 reglulega og stóð upp (gula línan). Þá fær maður smá blóðflæði og léttir pressunni af viðkvæmum stöðum. 

Á meðan á æfingunni stóð át ég 3 banana, eitt hafrastykki, 2 muffins og drakk 1,5 lítra af vatni og 700 ml. af electrolyte blöndu (án kolvetna). Það eru 1270 kílókaloríur en ég brenndi 1660. 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap