Langur laugardagur og vikan dauðrotuð

Býsna stöðug löng æfing; cadence 84, hjartsláttur 124 og power 164w. Ég fór 108 km á 03:01 klst og steig aldrei af hjólinu.

Ég var ekki viss í gær hvort ég yrði vel upplagður í langa æfingu í dag. Var með smá þreytu í löppunum í gær en leið sæmilega þegar ég vaknaði í morgun. Ég fékk mér því einn veglegan bolla af kaffi og settist svo á hjólið klukkan 09:00. Mér leið strax vel og var að skila fínni vinnu á frekar lágum hjartslætti. Það var freistandi á köflum að fara að gefa í en ég náði að hemja mig. Á meðan á þessu stóð át ég 3 banana, slatta af döðlum og 2 muffins.

Mörgum finnst það sjálfsagt alger sturlun að taka svona langar æfingar inni og halda eflaust að maður sé bilaður. Harpa lýsti sinni fyrstu 3 klst æfingu inni sem "mannskemmandi". Hræðilegt sagði hún. En ég díla ágætlega við þetta þó ég ætli ekki að reyna að ljúga því að ég njóti þess allan tímann. En ég hef náð að venjast þessu furðuvel og er með nokkur trix sem ég nota:
  • Það skiptir máli að gíra sig vel upp í þetta andlega og muna hvað manni líður vel þegar maður hlammar sér í sófann á eftir með kaffi.
  • Minna sig á hvað maður græðir hrikalega mikið á löngum endurance æfingum.
  • Hafa allt við hendina, nóg að drekka, éta, handklæði, síma og headphones.
  • Brjóta tímann upp í 15 mínútna búta og narta í eitthvað.
  • Ég stend upp reglulega til að létta pressunni af rassinum.
  • Velja hraða flata braut með fullt af öðrum hjólurum. Það er skemmtilegra að fara hratt.
  • Skiptast á að hlusta á podköst, tónlist og kíkja kannski á youtube.
  • Ef æfingin er auðveld er hægt að hringja í vin🤪
Vikan á Training Peaks.

Þessi langa æfingin sló botninn í fína æfingaviku. Næsta vika (síðasta vika fyrir Tene) er svo hvíldarvika hjá mér og þá eru bara 5:45 klst á dagskrá. Það hentar mér vel enda verður næsta vika annasöm bæði í vinnu og undirbúningi fyrir ferðalagið.

Ég var 8 klst á hjólinu og 1.45 klst í ræktinni og heimaæfingum. Nú styttist í að ég fari að fasa út lyftingarnar og þá verð ég yfirleitt að hjóla frá 6 klst (hvíldarvika) og upp í 12 klst þegar mest verður um að vera. Það þykir í rauninni ekki mikið í þessum bransa en ég held að ég bæti ekki við þetta í ár. Það er gáfulegra að gefa þessu 2-3 ár svo líkaminn aðlagist álaginu. 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap