Brjálað að gera

VO2 Max úr Garmin.

Garmin getur reiknað VO2 Max út frá hraða (hlaup, hjól etc) og hjartslætti með 95% öryggi. Ef maður hjólar í allavega 15 mínútur á 70% af hámarkspúls er líklegt að maður fái nokkuð góða mælingu. Eftir því sem æfingum fjölgar, eykst nákvæmnin (meiri gögn). Útkoman fer nálægt því að gefa sömu niðurstöðu og mæling á rannsóknarsofu með skekkjumörk upp á 3.5ml/kg/min (1 MET). Í mínu tilfelli er ég á bilinu 50 til 74,2 í VO2 Max- líklegast mitt þar á milli, sem er mjög gott. 

Ég hef verið rokkandi frá 59 og upp í 62 síðan ég fékk Garmin tölvuna í fyrra og hef verið að reyna að sjá eitthvað munstur í þessu. Í síðustu viku hoppaði ég úr 60 í 62 eftir langa endurance æfingu en veit ekki hvort það var bara tilviljun. Ef ég fer að halda mér í 62 eða fer jafnvel hærra, þá þýðir það að ég er að komast í betra form og þess vegna hef ég gaman að fylgjast með þessu. En hvað er VO2 Max?

VO2 Max segir hversu vel hjartað og æðarnar geta komið blóði (súrefni) til vöðvanna. Það mælir hámarks súrefnisupptöku í millilítrum O2/kg/mínútu. Þetta er mælikvarði á þol og heilbrigði hjartans.  Lágt VO2 Max getur einnig haft forspárgildi varðandi hjartasjúkdóma.

En hvað er gott VO2 Max? Meðal kyrrsetumaður er með VO2 Max upp á 35-40 ml/kg/min en kyrrsetukonur 27-30 ml/kg/min. Til samanburðar eru atvinnuhjólreiðamenn oft með VO2 Max á bilinu 80 til 90 ml/kg/min. Ég er þarna á milli sem þarf ekki að koma á óvart.

Þó VO2 Max segi mikið um hversu góðu formi maður er í þá segir það ekki alla söguna. En í hjólreiðum hjálpar hátt VO2 Max manni við að:
  • The ability to sustain medium-hard power outputs for longer due to lower production of fatiguing by-products
  • Functional Threshold Power (FTP) or critical power, which we’ll collectively refer to as maximal steady-state power
  • An improved maximal lactate steady-state (sometimes referred to as the lactate or anaerobic threshold), 
  • Better recovery from hard efforts, due to faster clearance and processing of fatiguing by-products
Hátt VO2 Max fer að miklu leiti eftir erfðum og það er takmarkað hvað hægt er að ná að bæta það mikið. 20 ára einstaklingur sem hefur æft mjög mikið getur t.d. verið kominn mjög nálægt því hámarki sem hann getur nokkurn tímann náð. En mér finnst gaman að fylgjast með þessu og hlakka til að sjá hvort þetta hýfist eitthvað upp eftir því sem líður á tímabilið.

Annars er ég staddur í Reykjavík í vinnutörn og það er búið að vera brjálað að gera. Maður er gjörsamlega þurrausinn eftir daginn og eftir það hef ég bara skriðið upp á hótel. Í dag fór ég reyndar í spinning með Helgu systur og það var alveg skemmtileg lífsreynsla.

Það var keyrt á útopnu allan tímann og ég náði álíka háu TSS (Training Stress Score) og maður nær oft á 2 tíma æfingu. Maður gæti ekki staðið undir mörgum svona æfingum á viku en fínt að gera þetta í neyð þegar maður kemst ekki á hjólið. Eftir það lyfti ég 40 mínútur og fór svo í pottinn og gufu. Núna var ég að gúffa í mig salati og held hreinlega að ég fari bara að leggja mig.



Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap