Af fingrum fram í eldhúsinu

Kvöldmaturinn í gær.

Það var sem mig grunaði, þegar ég kom í búðina í gær fraus ég alveg og vissi ekkert hvað ég ætti að kaupa. Labbaði hring eftir hring og datt ekkert í hug. Endaði næstum á að kaupa pylsur en bakkaði út úr því á síðustu stundu. Að endingu ákvað ég að elda bara sæta kartöflu, egg og éta avocado. Keypti reyndar papriku líka en gleymdi að éta hana. Það merkilega við þetta var að þetta var bara drullu gott.

Á leiðinni úr vinnunni í dag hjólaði ég svo bara framhjá Nettó og ætla að reyna að finna mér bara eitthvað sem er til hérna heima og spara pening. Ætli það endi ekki bara í hafragraut og eggjum. Það er s.s. í góðu lagi enda át ég kjúlla og sætkartöflumús í hádeginu og er ágætlega nærður.

Ég var með frekar erfiða æfingu í dag og var alveg á nippinu með henda henni út og taka eitthvað auðvelt þar sem ég er eitthvað sár í hálsinum. En að endingu lét ég bara vaða á þetta og gekk bara helvíti vel. Þetta var 1:40 klst með 5x5 mín threshold blokkum í lokin sem tóku alveg í. Hjartslátturinn fór að leka örlítið upp fyrir það sem hann átti að vera í lokin en ég tek þetta bara aftur á sömu vöttum næst og sé hvernig það verður.

Á morgun er rækt og auðveldur klukkari á hjólinu, á laugardaginn rúmlega 3 klst endurance en sunnudagur óráðinn. Það er því nóg fyrir stafni og það er bara fínt enda líður mér vel og finnst ég aldrei hafa verið öflugri á hjólinu. Mataræðið á stóran þátt í því.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap