Á leið í flug [vonandi]

Vikan á Training Peaks.

Sit uppi í rúmi og fæ mér síðasta bolla dagsins rétt fyrir flug. Veðrið á reyndar að vera að versna fyrir sunnan þannig að ég er orðinn pínu stressaður. Ef það klikkar verð ég að redda mér bílaleigubíl á eftir og bruna í kvöld og nótt. Ég er að fara að stýra vinnustofu sem verður alla vikuna. Búinn að vera að vinna að þessu í nokkra mánuði.

Þar sem ég kemst ekki á hjólið næstu daga ákvað ég að loka vikunni með trukki og tók helvíti erfiða æfingu þar sem ég keyrði í spretti og tæmdi allt úr fótunum. Líður samt alveg prýðilega vel en það verður ágætt að hvíla í 2 daga. Eftir það skelli ég mér í ræktina fyrir sunnan og fer á bretti og/eða hjól. Síðan að lyfta eitthvað. 

Er að verða of seinna þannig ég kvitta bara í bili..... 

d

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap