Ýmist í ökkla eða eyra
Tásumyndir frá Akureyri. |
Sumir senda tásumyndir frá Tene en ég sendi þær frá Akureyri. Ég bið ykkur afsökunar á þessum ósóma en sjálfum finnst mér áhugavert að fylgjast með þróuninni í þessu.
Í gær hringdi ég í Helgu systir sem sagði að mér væri óhætt að hjóla og ganga. Líka mjög mikilvægt að gera stöðuleikaæfingar (standa á annari) og liðka þetta upp. Ég gekk því heim úr vinnunni í gær og þegar þangað var komið hjólaði ég í 30 mínútur. Það gekk super vel og ég fann ekki fyrir neinu.
En þar sem marið er farið að koma í gegn alveg fram á tær, þá ákvað ég að senda Helgu mynd af þessu nú í morgun. Til að gera langa sögu stutta þá líst henni ekki vel á þetta og vill að ég fari á bráðamóttökuna og láti mynda þetta. Útiloka að eitthvað sé rifið eða að það sé ekki beinflís einhverstaðar á ferðinni. Hún sagði að það væri svo mikill vökvi og mikil bólga (og bólgufrumur) að það gæti deyft sársaukann og villt mér sýn.
Ég verð að viðurkenna að nú er ég orðinn frekar órólegur og veit ekki alveg við hverju ég á að búast. Sex vikur í hjólaferð............... krossa fingur
Ummæli