Rafmagnsleysi

Útilegudótið bjargaði manni um kaffi í morgunsárið.

Það var gefið út í gær að rafmagnslaust yrði í stórum hluta af Lundarhverfi í dag á milli kl. 08:00 og 16:00. Svolítið skrítið að gera þetta á laugardegi en sjálfsagt var það til að koma í veg fyrir að skólahald myndi falla niður. Kaffifíkillinn ég undirbjó mig vel fyrir þetta og hafði prímusinn tilbúinn til að bjarga morgunbollanum. Ég passaði líka að sjálfsögðu að síminn og fartölvan væru fullhlaðin svo maður myndi örugglega ekki missa af neinu á samfélagsmiðlum og úr fréttum.

Ég breytti æfingaplönunum hjá mér út af þessu rafmagnsleysi þar sem ég átti langa æfingu í dag og nennti ekki að vera að hjóla fram að kvöldmat. Ég hjólaði niður í bæ í gær til að ná mér í nýjan router og á leiðinni heim tók ég vel á því. Þegar ég kom heim tók ég fína æfingu fyrir efripart og henti mér svo í erfiða 30 mínútna æfingu á hjólinu sem tók vel í lappirnar. Löngu æfinguna færði ég fram á morgundaginn. Frí og næsheit í dag.

Ég fann ekkert til í ökklanum og ristinni eftir æfinguna í gær en er smá aumur í dag. Kannski hefði maður bara átt að halda sig við rólega stöffið- alltaf hægt að vera vitur eftirá. En vonandi verð ég bara fínn á morgun.

Nú styttist í að ég klári nýju æfingaaðstöðuna í svefnherberginu en það hefur ekki alveg gengið átakalaust fyrir sig. Ég og Þórður boruðum í rafmagnslögn þegar við vorum að færa upphífingarstöngina og slóum út öllu rafmagni. Það tók okkur smá tíma að opna dósina í loftinu og finna hvaða víra við þyrftum að aftengja. Þetta tókst allt að lokum og Daníel ætlar að koma á morgun og hjálpa mér að draga í og klóra yfir skítinn. Stefni að því að færa hjólið yfir á mánudaginn.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap