Langhundur og viftukaup
Æfing dagsins. |
Ég vaknaði klukkan 07:40 í morgun og átti mína heilögu morgunstund með tölvunni minni og kaffi. Var aðeins lengur að koma mér að verki en ég ætlaði mér og var ekki kominn á hjólið fyrr en klukkan 09:00. Það var löng endurance æfing í dag, eða 2:20 klst. Ég skrúfaði aðeins upp vöttin frá síðustu æfingu og var í 165W (2,5w/kg). Í dag gekk þetta super vel og hjartslátturinn náði strax fínu róli á bilinu 122-128 slög/mínútu. Ég ákvað að halda mér undir 130- en skv. Training Peaks er ég kominn upp í tempo þegar ég fer yfir 130.
Ég var svo frískur að ég hækkaði vöttin upp í 175 eftir 1,5 klst en þá fór ég aðeins að leka yfir 130 bpm og skrúfaði niður aftur. En ég var mjög ánægður með þessa æfingu þar sem ég var 13 vöttum hærri en á síðasta laugardag en með lægri hjartslátt. Næsta laugardag stefni ég að því að lengja aðeins en bíða með að skrúfa upp vöttin.
Eftir æfinguna skelltum við Brynleifur okkur yfir til Hörpu og tókum með okkur kaldan kjúkling, salat, avocado og eitthvað grænmeti. Ég hafði svo matinn tilbúinn fyrir Hörpu þegar hún var búin að baða sig eftir sínar æfingar. Eftir þetta skellti ég mér í Elko og keypti viftu. Þaðan lá leiðin í Byko þar sem ég verslaði hilluefni, veggfestingar og hanka til að hengja nýju viftuna upp á vegginn. Ég er því í rauninni kominn með allt sem ég þarf fyrir nýju hjólaaðstöðuna og nú er bara að drífa sig að henda þessu saman.
Ummæli