Góðar fréttir

Æfing gærdagsins.

Eftir samtalið við Helgu systir í gær ákvað ég að kíkja upp á sjúkrahús og láta tékka á fætinum til öryggis. Hjúkrunarkona og læknir voru sammála að þetta liti frekar illa út en skoðun benti þó ekki til þess að neitt væri brotið eða alvarlega slitið. Ég bað þó um að fá að fara í röntgen bara til að taka allan vafa af um þetta. Ég hefði annars ekki verið rólegur að þjösnast á þessu. En niðurstaðan var góð; þetta er óbrotið og gott fyrir batann að hjóla.

Ég hélt upp á þetta með að fara í ræktina og tók svo fína hjólaæfingu. Æfingin átti bara að vera róleg en ég bætti inní hana 25 mínútum af tempo þar sem mér leið helvíti vel og fann ekki fyrir neinu. Í dag mun ég taka 1,5 klst af endurance. Á morgun er bara rækt hjá mér og svo ætla ég að taka 2:35 klst. á laugardag og 1 klst recovery á sunnudag. 

Af augljósum ástæðum hef ég lagt hlaupin á hilluna í bili en ég er svo ánægður með að geta hjólað að ég brosi allan hringinn. 6 vikur í sól og sælu :) 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap