Back on track

Það er að rætast úr þessu þrátt fyrir veikindin.

Nú er ég vonandi loksins búinn að stimpla mig út úr þessum veikindum. Ég kláraði æfingaplanið fyrir vikuna þrátt fyrir að hafa verið með efasemdir um að það væri gáfulegt fyrr í vikunni. Mér leið hinsvegar alltaf vel og var aldrei neitt þreyttur eða stirður í löppunum. Ég fékk smá strengi eftir lyftingarnar á föstudaginn en það truflaði mig ekkert á hjólinu eða í hlaupinu í morgun.

Ég er búinn að hlaupa 2var, hjóla 5x, lyfta 2svar og svo taka smá jóga fyrir mjaðmir og fætur. Á morgun (mánudag) á ég eina lyftingaæfingu en svo er ég að spá í að gefa mér alveg 2 daga í hvíld til að láta þetta síast inn. Þá daga ætla ég að nota til að taka í gegn hérna heima og einbeita mér að börnunum.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap