Ammli

Nokkur úr vinnunni sem náðumst á mynd á 20 ára afmæli Umhverfisstofnuanr. Edda fékk blóm fyrir 20 ára vel unnin störf.

Ágætis föstudagur að baki þó vissulega hafi verið svekkjandi að sjá strákana okkar tapa fyrir Svíum. En ég var s.s. með mjög hóflegar væntingar fyrir leik. Það var gaman í vinnunni í dag, hófleg blanda af daglegu amstri og fjöri. Stofnunin var að fagna 20 ára afmæli og því vorum við með kökur, pizzur glundur í glös og reyndum að brjóta upp daginn.

Eftir vinnu fór ég heim og þar biðu mín gjafir í röðum frá Hörpu minni. Þorramatur, blóm, bakkelsi og hjólatreyja. Mikið er ég heppinn með kærustu, hún er best. Eftir þennan glaðnin skellti ég mér búð, henti kjúlla í ofninn og fór í ræktina á meðan hann mallaði. Við börnin fengur okkur svo vel að éta áður en við hlömmuðum okkur fyrir framan leikinn.

Á morgun er 2:20 mín endurance æfing og ég hugsa að ég taki daginn snemma til að klára þetta af. Eftir það stefni ég að því að komast í Elko og kaupa viftu og í Byko að kaupa festingar og hilluefni. Nóg að gera!

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap