Allt á uppleið
Nú hefur ástandið á heimilinu heldur verið að skána og við feðgin að hressast. Dagbjört ældi síðast í gærmorgun (laugardag) og ég er miklu skárri en ég hef verið. Það er eins og hausinn á mér sé að hreinsa sig og maginn hefur verið miklu betri í dag.
Gærdagurinn var reyndar býsna góðu og það helltist yfir mig einhver orka til að fara í ýmis verkefni sem setið hafa á hakanum hérna heimafyrir. Ég þreif, skúraði, flokkaði dót og fór í gegnum föt. Og það sem meira er þá greip ég mér málband og fór að skipuleggja smá breytingar og framkvæmdir.
Ég hef ekki verið mjög framkvæmdaglaður eftir að ég kom mér fyrir en núna finnst mér kominn tími á að fínisera aðeins. Þá er ég fyrst og fremst að hugsa um herbergið mitt og eldhúsið, en baðið er of mikill pakki í bili.
Annars var ég að velta því fyrir mér hvort þessi atorka í mér í gær hefði stafað af því að ég hafi átt svona mikla orku þar sem ég var ekki búinn að geta hreyft í mig í 3 daga? Kannski taka þessar æfingar oft meira úr manni en maður heldur? En það verður þá bara að hafa það, maður getur ekki gert allt.
Ég ákvað að taka smá snúning á hjólinu í dag svo ég fengi einhverja smá hreyfingu. Ég tók rólegt spinn í 45 mínútur og horfði á seinni hálfleikinn í handboltanum á meðan. Það var voðalega gott að hreyfa aðeins lappirnar og ég vona innilega að ég nái að æfa eftir plani næstu vikur.
Ummæli