Það gengur ýmisslegt á
Hollt og gott til að ná heilsu- egg og avocado-brauð. |
Eftir að hafa vaknað drulluslappur í gærmorgun þá fór heldur að hækka á mér risið eftir því sem leið á daginn. Eftir kvöldmat í gær var ég svo orðinn þokkalegur en var samt búinn að ákveða að vinna heima í dag. Ég svaf ágætlega í nótt en við vöknuðum um klukkan sex við að Dagbjört Lóa var að æla á gólfið fyrir framan klósettið. Ég verkaði það upp og lagðist aftur upp í rúm. Þegar ég var að festa svefn aftur þá endurtók hún leikinn og staðfest að ælupestin hefur bankað upp á hjá okkur.
Mér sjálfum líður betur en í gær. Ég er ekki jafn slæmur í hálsinum en er ennþá eitthvað skrítinn í maganum og pínu ringlaður- s.s. ekki alveg í toppformi ennþá. En ég ætla samt að ræsa vinnutölvuna og sjá hvort ég komi ekki einhverju í verk. Ef ég verð jafn hress seinnipartinn og ég var í gærkvöldi hugsa ég að ég taki 30-45 mínútur mjög rólegt á hjólinu en þori ekki að skella mér í ræktina eins og var á planinu.
Ummæli