Vikulok
Tæpir 5 tímar þessa vikuna. |
Ég vaknaði í morgun kafstíflaður og með særindi í hálsinum. Eftir að hafa ráðfært mig við minn helsta sérfræðing í heilbrigðismálum var niðurstaðan sú að ég þyrfti jafnvel að fara á sýklalyf til að hreinsa á mér hausinn. Viðkomandi sérfræðingur [móðir mín] taldi einnig að það myndi sennilega ekki saka að ég fengi mér nettan hlaupatúr til að prufa hvort það hreinsaði aðeins hausinn.
Ég reimaði því á mig hlaupaskónna, klæddi mig eftir bestu vitund og hélt af stað. Ég leit aldrei á úrið allan tímann og reyndi bara að gera þetta eftir tilfinningu- ætlunin var að vera í 120 bpm og undir. Það kom svo í ljós þegar ég kom heim að ég var vel yfir því. Mér hafði samt liðið þokkalega vel allan tímann en hægra hnéið var samt eitthvað að stríða mér núna og ég er ekki alveg góður þegar ég geng.
Eftir að ég kom inn eftir hlaupið ákvað ég að lengja aðeins og skellti mér á hjólið. Þar var það sama sagan, púlsinn of hár en mér leið samt vel og hélt alveg vöttunum ágætlega. Þetta var bara stuttur sprettur, 30 mínútur á 170 vöttum, tæpir 20 km.
Hvíldarpúlsinn í dag er búinn að vera allt of hár og ég veit eiginlega ekkert hvað er í gangi. Á góðum degi er hvíldarpúlsinn hjá mér 55 frá því ég fer á fætur og leggst á koddann, en í dag var hann 80. Kannski var ég líka bara svona þurr því eftir 3 glös af vatni fór hann eitthvað að skána.
En ef ég verð ekki betri á morgun reyni ég sennilega að fá tíma hjá lækni eða sendi inn skilaboð á Heilsuveru. Ég þarf að fara að losna við þetta helvíti. Ég var að tala við Helgu systir og hún er líka að glíma við þetta sama og líður líka alveg prýðilega á meðan hún tekur æfingar.
En þrátt fyrir allt þá náði ég að hreyfa mig eitthvað í vikunni og er því bara en á fínu róli. Skelli mér í ræktina á morgun og svo er hjólaæfing á þriðjudaginn. Það er stutt hlaup ef hnéið þolir á miðvikudaginn og stutt hjól eftir það. Ég fer aftur á hjólið á fimmtudaginn og svo ætla ég að reyna að hlaupa 15 km á Aðfangadag, aftur- ef hnéið leyfir.
Ég er búinn að hrúga inn æfingum í vikunni á milli jóla og nýjars. Það verður dásamleg vika, full af hreyfingu og svo liggur maður bara á sófanum þess utan.
Ummæli