Útilhlaup og heimaæfingar

Harpa og Billi í slökun.

Harpa er búin að vinna eins og skepna þessa viku og við ekki mikið getað verið saman. En það er að detta í fríhelgi hjá henni og við ætlum að hafa það rosalega næs. Það eina sem ég er með ákveðið fyrir helgina (utan við æfingar) er að reyna að ganga frá jólagjafakaupum. Ég er búinn að vera með einhvern hnút í maganum út af þessu jólastússi öllu og það hlýtur að létta aðeins af manni ef maður nær að klára gjafirnar að mestu.

Hlaup dagsins var tæplega 5,5 km og frekar rólegt.

Ég er búinn að vera drullu kvefaður í dag og hef oft verið betur upp lagður. Ég ákvað samt að láta mig hafa það að skella mér út að hlaupa. Ég fór 5,45 km á 5:33 min/km og var 95% af tímanum í Zone 2 (110 - 146 bpm). 

Þegar ég kom heim fór ég að gera æfingar en mundi þá eftir 40 ára surprise afmælisparty hjá Davíð og henti mér í bað, pakkaði inn einhverri gjöf og dreif mig af stað. Þetta var mjög fínt teiti og ég kynntist nýju fólki og tróð í mig einhverjum veitingum.

Þegar ég kom heim aftur kláraði ég æfingarútínuna mína, horfði á fótbolta, gekk aðeins frá og brasaði eitthvað. Á morgun er fótaæfing í ræktinni og svo hjól og hlaup um helgina.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap